Bjarni Viðar Sigurðsson leirlistamaður var útnefndur bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar 2026 við athöfn í Hafnarborg í dag.
Bjarni sinnir list sinni hér í Hafnarfirði, er með leirlistaverkstæði við heimili sitt í Hrauntungu og vinnur þar muni sem hann selur víða um heim. Vegglistaverk, vasar, bollar, skálar, diskar og fleira – allt úr leir.
Straumhvörf urðu í lífi Bjarna á tíunda áratugnum þegar hann hvarf úr bankageiranum í keramikið. „Ég er mjög stoltur af því að vera bæjarlistamaður Hafnarfjarðar. Það er heiður. Mér finnst yndislegt að vera séður í samfélaginu,“ segir Bjarni sem gleymir sér í að finna rétta glerunginn á verkin sín. Það gerði hann einnig þegar hann fékk fyrsta leirklumpinn í hendurnar á kvöldnámskeiði í Myndlistaskóla Reykjavíkur meðfram starfi sínu í Búnaðarbankanum.
„Ég hugsaði þarna: Ég ætla að verða keramiker,“ segir Bjarni sem fór í kjölfarið til Danmerkur í enn frekara nám í Aarhus Kunstakademi. Þar bjuggu þeir Guðbrandur Árni Ísberg maður hans í rúman áratug þar til þeir fluttu heim og komu vinnu sinni og heimili fyrir í Hrauntungu í Hafnarfirði. Bjarni með vinnustofu sína og Guðbrandur sálfræðistofu.
„Þetta er brjáluð, brjáluð vinna og hún hefur skilað sér og gefur mér mikið,“ segir hann um list sína en finna má muni Bjarna í þekktum hönnunarverslunum, meðal annars í Bandaríkjunum og Danmörku. Einnig veitingastöðum hér heima og erlendis. Má þar nefna Michelin-veitingastaði Jean George í New York sem og í sjóbaðinu í Hvammsvík. Bjarni selur þúsundir muna í ABC Carpet and Home í New York. Muni hans má einnig finna í Flora and Henry í Seattle, sem og Illum og Designer Zoo í Danmörku og Epal – Allir handgerðir.
Bjarni er fæddur Reykvíkingur en hefur búið hér í Hafnarfirði frá árinu 2007. „Hellisgerði er uppáhaldsstaðurinn minn hér í Hafnarfirði,“ svarar hann spurður. „Við löbbum mikið í Hafnarfirði, niður á höfn og tengjumst sjónum og bænum. Svo finnst mér frábært að sjá bæinn lifna við og sjá vini okkar streyma hingað víðsvegar að til að fara út að borða, njóta lífsins og kíkja þá við hjá okkur,“ segir hann.
„Við höfðum skoðað ýmsa staði en ég segi: Takk Guð fyrir að hafa komið okkur hingað, því þetta er besta bæjarstæðið á höfuðborgarsvæðinu. Við erum ekki að fara héðan í framtíðinni.“





