HeimFréttirBær fyrir fólk, ekki braskara

Bær fyrir fólk, ekki braskara

Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar

Í Hafnarfirði hefur alltof lengi verið ofuráhersla lögð á að stækka bæjarfélagið með tilheyrandi lóðabraski. Slík útþenslustefna er ekki bara ósjálfbær og óumhverfisvæn, hún er ekki mannvæn. Á meðan fjárveitingar bæjarins til framkvæmda eru að stórum hluta bundnar í fjármögnun gatnagerðar fyrir ný hverfi, sitja íbúar þeirra hverfa sem fyrir eru óhjákvæmilega á hakanum. Við í Vinstrinu mælumst því til þess að fókusinn verði færður – fegrum hverfin okkar og byggjum upp nærþjónustu við íbúana. Hún er grundvöllur fyrir vellíðan þeirra.

Þessi afstaða okkar í Vinstrinu þýðir þó ekki blátt bann við nýbyggingum, enda vantar húsnæði alls staðar. En það skiptir máli hver byggir, hvernig er byggt og fyrir hverja. Meirihlutinn í Hafnarfirði hefur einblínt á einskiptisgróða með stórfelldri lóðasölu til verktaka, sem hafa byggt kynstrin öll af íbúðum sem þjóna ekki þörfum íbúa bæjarins. Hér hafa verið byggðar upp rándýrar lúxusíbúðir sem fæst ungt fjölskyldufólk eða fólk með minna á milli handanna hefur ráð á að kaupa. Þá eru hverfin allt of oft skipulögð án þess að gæta að því að leikvellir og græn svæði stuðli að vellíðan fólks í hverfinu. Allir mögulegir fermetrar verða verktökunum að bráð. Niðurstaðan hefur oftar en ekki verið hálfkláruð og óvistleg hverfi, full af illseljanlegum eignum.

Tenging hverfanna við heilsueflingu og náttúru

Við í Vinstrinu í Hafnarfirði viljum að skipulag og byggingar taki fyrst og fremst mið af lífsgæðum þeirra sem þar eiga að búa. Allir hverfakjarnar eiga að bjóða upp á græn svæði, skjól, góða birtu og aðgengi að útivist. Við eigum ekki að samþykkja að byggð rísi sem þjónar fólki illa í raunveruleikanum þó hún líti kannski vel út á teikningu. Auk þess er öryggis- og grunnatriði að passa upp á að samgöngur til og frá íbúðakjarna séu greiðar. Um þetta þarf sveitarfélagið að setja sér ákveðna stefnu: hvaða uppbyggingu ætlum við að leyfa í bæjarlandinu? Væri til dæmis hugsandi að fyrir hvern byggingarfermetra sem verktaki fær að byggja af húsnæði til endursölu væri hann skyldugur til að byggja upp ákveðna samfélagsinnviði samhliða því?

Öruggt húsnæði er mannréttindi – líka í Hafnarfirði

Við vitum að húsnæði er almenn mannréttindi, ekki bara fjárfestingartæki fyrir fáa. Öruggt húsnæði er lykilatriði fyrir lýðheilsu og velsæld fólks og til að sporna gegn fátækt. Þetta á líka við um Hafnarfjörð og húsnæði Hafnfirðinga. Gera þarf átak í því að bæta úr húsnæðisskorti enda eru 344 Hafnfirðingar á biðlista leigufélagsins Bjargs til að komast í viðráðanlegt og öruggt húsnæði í Hafnarfirði. Bak við þessar tölur er alvöru fólk.

Til að bæjarfélagið geti sinnt skyldu sinni um að útvega íbúum húsnæði við hæfi, þurfum við að efla almenna íbúðakerfið, styðja við óhagnaðardrifin leigufélög, eins og Bjarg, og tryggja að öll sveitarfélög axli ábyrgð og taki virkan þátt í uppbyggingu hagkvæms húsnæðis. Hafnarfjörður hefur gert það og staðið sig ágætlega að mörgu leyti, en fjöldi Hafnfirðinga á biðlista hjá Bjargi sýnir að það þarf að gera meira og gefa verulega í. Einnig þarf að tryggja að til séu lóðir í Hafnarfirði fyrir félagslegt húsnæði og haga úthlutun lóða þannig að framboð íbúða fyrir venjulegt fólk verði aukið og ekki sé bara boðið upp á lóðir fyrir lúxusíbúðir eða fjársterka aðila.

Hafnarfjarðarbær þyrfti líka að gera breytingar á húsnæðisáætlun bæjarins með það markmið að 35% nýbygginga séu óhagnaðardrifin. Einnig eigum við að tryggja meira fjármagn í uppbyggingu

heimila fyrir fólk með fötlun og innleitt breytta nálgun í uppbyggingu nýrra svæða með sérstöku innviðafélagi. Við getum líka aukið stuðning við leigjendur. Allt þetta er vel hægt og hefur td. nýlega verið samþykkt af sitjandi meirihluta í Reykjavík.

En til þess þurfa stjórnmálaöfl að vera við stjórnvölinn í Hafnarfjarðarbæ sem leggja áherslu á að fjölga raunverulegum valmöguleikum í húsnæði fyrir alla Hafnfirðinga. Ekki bara fyrir fjársterka aðila eða fasteignabraskara. Við getum valið að setja þarfir fólks í forgang en ekki þarfir markaðarins.

Ester Bíbí Ásgeirsdóttir,
oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2