HeimFréttirBæjarbíó 80 ára

Bæjarbíó 80 ára

Valdimar Víðisson skrifar

Það er engum blöðum um það að fletta að við Hafnfirðingar erum ákaflega stolt af Bæjarbíói. Húsið hefur í átta áratugi verið samkomustaður fólksins í bænum, staður þar sem við höfum hlegið og grátið saman, lært og notið, fagnað og glaðst. Það er hluti af sjálfsmynd okkar og menningu.

Saga og arfleifð

Bæjarbíó var tekið í notkun 6. janúar 1945 þegar Hafnarfjarðarbær ákvað að stofna eigið kvikmyndahús. Það þótti stórt skref á sínum tíma og reyndist farsæl ákvörðun. Húsið var hannað af fremstu arkitektum og þótti eitt hið fullkomnasta á landinu. Fyrstu sýningarnar voru öllum opnar og sóttu þær um 3.000 manns, sem sýndi strax hversu mikil þörf var fyrir slíkan vettvang.

Í gegnum árin varð Bæjarbíó ekki bara bíóhús, heldur menningarhús í víðum skilningi. Þar setti Leikfélag Hafnarfjarðar upp fjölmörg leikrit, þar ómaði tónlist Tónlistarfélagsins og Tónlistarskólinn tók sín fyrstu skref. Hagnaður af rekstri hússins rann jafnframt til byggingar Sólvangs, sem undirstrikar hvernig Bæjarbíó tengdist velferð og samhjálp í bænum.

Hjarta miðbæjarins

Bæjarbíó er meira en menningarhús, það er lykilþáttur í lífi miðbæjarins. Þegar sýningar og viðburðir fara fram fyllist miðbærinn af fólki og líf færir sig inn á kaffihús, veitingastaði og verslanir í nágrenninu. Húsið hefur þannig áhrif langt út fyrir veggi sína og er drifkraftur fyrir mannlíf og viðskipti í bænum. Þannig lyftir Bæjarbíó ekki aðeins menningarlífinu heldur allri miðbæjarupplifun Hafnfirðinga og þeirra gesta sem sækja okkur heim.

Á afmælisárinu er margt á dagskrá: sérstakar sýningar, tónleikar og fjölbreytt dagskrá sem undirstrikar að Bæjarbíó er enn í dag mikilvægur hluti af menningarflóru Hafnarfjarðar. Við fögnum ekki aðeins 80 ára afmæli hússins, heldur líka þeirri staðreynd að það heldur áfram að gefa okkur gleði, samveru og stolta tilfinningu fyrir bænum okkar.

Bæjarbíó er okkar sameiginlega arfleifð.

Valdimar Víðisson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar

Greinin birtist fyrst í októberblaði Fjarðarfrétta

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2