Kappahl heldur áfram uppbyggingu sinni á Íslandi með opnun nýrrar verslunar í verslunarmiðstöðinni Firði á morgun, föstudag.
Verslunin er rúmlega 400 fermetrar að stærð og verður hluti af þeirri stækkun og endurnýjun sem nú stendur yfir í Firði þar sem nýtt bókasafn Hafnarfjarðar mun einnig taka til starfa á næstu vikum.
Ný hönnun
V
erslunin í Firðinum verður jafnframt fyrsta Kappahl-verslunin á Íslandi sem nýtir að fullu nýja innréttingahönnun Kappahl. Nýja hönnunin byggir á bjartari, opnari og hlýrri verslunarupplifun þar sem náttúruleg efni, mildir litir og skýr framsetning vöruflokka skapa rólegt og aðgengilegt umhverfi fyrir viðskiptavini. Sérstök áhersla er lögð á betra flæði um verslunina, fallega framsetningu og heildstæða upplifun þar sem allar deildir Kappahl og Newbie njóta sín með nútímalegum hætti.
Með opnuninni færir Kappahl viðskiptavinum í Hafnarfirði og nágrenni breitt úrval af skandinavískri hönnun, góðum gæðum og hagkvæmri tísku fyrir alla fjölskylduna.
Fatnaður fyrir karla, konur og börn
Verslunin í Firðinum mun bjóða upp á allar deildir Kappahl, þar á meðal fatnað fyrir konur, karla og börn, undirfatnað og sígildar grunnflíkur ásamt tískufatnaði fyrir daglegt líf. Þá verður Newbie einnig í boði í versluninni, en hið vinsæla barna- og lífsstílsvörumerki hefur notið mikilla vinsælda hér á landi sem og víða um Norðurlönd og í Bretlandi fyrir mjúk efni, tímalausa hönnun og rómantísk skandinavísk mynstur.

„Það er mikil ánægja að opna Kappahl í Firðinum, í sjálfu hjarta Hafnarfjarðar. Fjörður hefur sterka stöðu í bæjarlífinu og með þeirri endurnýjun sem nú á sér stað í miðbænum, nýju bókasafni og áframhaldandi uppbyggingu í verslunarmiðstöðinni, teljum við þetta frábæran stað fyrir Kappahl,“ segja Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, sérleyfishafar Kappahl og Newbie á Íslandi.
„Þetta er jafnframt sérstakt skref fyrir okkur þar sem verslunin í Firðinum verður fyrsta verslunin hér á landi sem sýnir að fullu nýja innréttingahönnun Kappahl. Við hlökkum til að bjóða viðskiptavinum í Hafnarfirði inn í bjarta, fallega og nútímalega Kappahl-verslun þar sem allt vöruúrvalið fyrir fjölskylduna fær að njóta sín. Mínar verslunarættir spanna hér mörg hundruð ár aftur í tímann sem gerir þetta skref enn skemmtilegra“ segir Lóa jafnframt.

Fjörður er vel staðsettur í miðbæ Hafnarfjarðar, í nánum tengslum við þjónustu, mannlíf og verslun í bænum og miðbærinn styrkist enn frekar sem lifandi áfangastaður fyrir fjölskyldur, verslun og þjónustu.
Sérstaða Hafnarfjarðar nýtur sín ekki síst á aðventunni þegar hið vinsæla Jólaþorp laðar að sér fjölda gesta og skapar einstaka stemningu í miðbænum. Með nýrri Kappahl-verslun í Firðinum bætist enn frekar við fjölbreytt verslunar- og þjónustuframboð í hjarta bæjarins.
„Við höfum fengið frábærar móttökur frá íslenskum viðskiptavinum og það er okkur mikilvægt að byggja Kappahl upp á lykilstöðum þar sem verslunin þjónar bæði nærsamfélaginu sem og stærri svæðum. Hafnarfjörður er stór og öflugur bær og við hlökkum mikið til að taka á móti viðskiptavinum í Firðinum,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir.
Kappahl hefur í meira en 70 ár boðið upp á tísku sem sameinar tímalausa skandinavíska hönnun, góð gæði og aukna áherslu á sjálfbærni fyrir alla fjölskylduna. Samhliða verslunum Kappahl á Íslandi geta viðskiptavinir einnig verslað í gegnum netverslunina kappahl.is og nálgast Newbie á newbie.is.
Um Kappahl Group
Kappahl var stofnað í Svíþjóð árið 1953 og rekur í dag 345 verslanir í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Bretlandi. Fyrirtækið hefur fest sig í sessi sem eitt af leiðandi tískuvörumerkjum Skandinavíu, með ríka áherslu á sjálfbærni, sígildar grunnflíkur, undirfatnað og tískufatnað fyrir konur, karla og börn.
Um Newbie
Newbie er barna- og lífsstílsvörumerki Kappahl, elskað víðs vegar um Norðurlönd og í Bretlandi fyrir mjúk lífræn efni, rómantísk skandinavísk mynstur og tímalausa hönnun sem ætluð er að endast og ganga milli kynslóða. Newbie verslanir eru 25 en vörumerkið er einnig selt í völdum Kappahl-verslunum sem og á netinu.
Um LKA19 ehf
LKA19 ehf. er íslenskur smásöluaðili sem er hluti fyrirtækjasamstæðu sem sérhæfir sig í rekstri leiðandi alþjóðlegra tísku- og lífsstílsvörumerkja, þar á meðal Gina Tricot og Mango. Með ríka áherslu á framúrskarandi upplifun viðskiptavina, háa staðla í verslunarrekstri og nýstárleg vörumerki hafa Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir ásamt afar reynslumiklu teymi yfir 160 starfsmanna gegnt lykilhlutverki í mótun tískuverslunar á Íslandi.








