fbpx
Mánudagur, apríl 29, 2024
HeimFréttirAtvinnulífIngimar úr Reykhólahreppi í Þingeyjarsveit

Ingimar úr Reykhólahreppi í Þingeyjarsveit

Hafnfirðingurinn Ingimar Ingimarsson hefur verið ráðinn sem sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar og hefur þegar hafið þar störf..

Ingimar er skrúðgarðyrkjufræðingur frá LBHI með BA í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur komið víða við í gegnum árinn og þekkir vel til verkefna sveitarfélaga m.a. í gegnum störf sín sem sveitarstjórnarmaður bæði fyrir Reykhólahrepp og Hafnarfjörð. Hann hefur starfað sem tónlistarkennari, garðyrkjuverktaki og umhverfis- og garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar. Þá hefur hann einnig stýrt hóteli og setið í fjölda nefnda á vegum sveitarfélaga s.s. framkvæmdarráði, þjónustu- og þróunarráði, nefndar um staðardagsrká 21 hjá Hafnarfjarðarbæ og skipulags-, hafnar- og byggingarnefnd Reykhólahrepps þar sem hann var oddviti.

Hann er ekki eini Hafnfirðingurinn í stjórnunarstöðu í Þingeyjarsveit en Atli Steinn Sveinbjörnsson var ráðinn skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps fyrir þremur árum síðan.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2