HeimFréttirAtvinnulífBL fær vilyrði fyrir stórri lóð við Reykjanesbrautina

BL fær vilyrði fyrir stórri lóð við Reykjanesbrautina

Hafnarfjarðarkaupstaður og BL – Sævarhöfða hafa ritað undir viljayfirlýsingu að BL byggi höfuðstöðvar sínar við Reykjanesbraut á nýrri allt að 41.000 m² lóð norðan við Íshellu, Rauðhellu og Móhellu.

Í viljayfirlýsingunni, sem sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 20. ágúst sl. segir að BL – Sævarhöfði ehf. mun byggja upp höfuðstöðvar sínar á lóðinni og muni Hafnarfjarðarbær vinna með stjórnendum fyrirtækisins að deiliskipulagi á lóðarinnar, til að ná fram þeirri nýtingu sem Hafnarfjarðarbær og BL – Sævarhöfði séu sammála um.

Aðalskipulag er að klárast vegna lóðarinnar og fyrirhugað er að deiliskipulag klárist á þessu og næsta ári þannig að
lóðin verði tilbúin til framkvæmda á árinu 2027.

Bifreiðaumboð í Hafnarfjörð

Í lok árs birti Hafnarfjarðarbær frétt á vefsíðu sinni að Tesla á Íslandi hafi fest sér húsnæði undir nýjar höfuðstöðvar sínar að Borgarhellu 6 í Hafnarfirði.  Þar kemur fram að Bygginga- og fasteignafélagið Bæjarbyggð muni reisa höfuðstöðvarnar og leigja Tesla húsnæðið. Afhending á húsnæði er áformuð um áramótin 2026/2027.

Hér að Borgarhellu 6 verða höfuðstöðvar Teslu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2