fbpx
Fimmtudagur, apríl 18, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAtvinnulífÆtla að skapa 250 ný og skapandi sumarstörf

Ætla að skapa 250 ný og skapandi sumarstörf

Menntasetrið við Lækinn verður gert að nýsköpunarstofu

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að skapa 250 ný sumarstörf og fjölga þeim störfum sem í boði eru fyrir hafnfirskt námsfólk og frumkvöðla nú í sumar. Menntasetrið við Lækinn verður gert að nýsköpunarstofu og mun hópurinn fá þar aðstöðu til nýsköpunar og rannsókna auk þess að hafa greiðan aðgang að sérfræðingum sveitarfélagsins. Ákvörðunin er liður í framkvæmd á Covid19 aðgerðaáætlun sveitarfélagsins.

80 verkefnatillögur

Covid19 aðgerðaáætlun Hafnarfjarðarbæjar tekur m.a. til nýsköpunar ungs fólks og frumkvöðla. Þegar aðgerðaáætlun var samþykkt þann 1. apríl sl. var sviðum bæjarins falið að taka saman lista yfir ný og afmörkuð verkefni þar sem nýta megi menntun og færni þátttakenda til nýjunga og umbóta í starfsemi bæjarins. Nær þetta m.a. til starfsemi og verkefna á sviði umhverfis- og framkvæmdamála, upplýsingatækni, fræðslumála, fjölskyldumála, menningarmála, íþróttamála og heilsueflandi samfélags sem sótt hefur verið um fyrir í Nýsköpunarsjóð námsmanna. Í heild bárust 80 verkefnatillögur frá sviðunum sem samsvara u.þ.b. 230 störfum.

Tillögurnar snúast flestar um krefjandi og metnaðarfull rannsóknarverkefni sem auglýst verður eftir háskólanemum til þess að vinna að í sumar en einnig ýmis átaksstörf sem tengjast t.d. aukinni stafrænni þjónustu og framkvæmdum í bæjarlandi auk skapandi sumarstarfa til þess að glæða bæinn lífi í sumar.

Sumarstörf í Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Nú þegar hefur mikil aukning orðið í umsóknum í Vinnuskóla Hafnarfjarðar og það hjá öllum aldurshópum. Allir þeir sem eru á aldrinum 14-17 ára fá vinnu og sýna nýjustu tölur mikla aukningu í hópi 17 ára umsækjenda eða a.m.k. tvöföldun. Biðlisti er þegar kominn í störf 18 ára og eldri og mun ákvörðun bæjarráðs frá því í dag m.a. taka til þeirra starfa.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2