fbpx
Fimmtudagur, október 3, 2024
HeimFréttirÁtaksdagur um einhverfu er í dag

Átaksdagur um einhverfu er í dag

Fróðlegt myndband um einhverfu sem þú verður að skoða!

Í dag er sérstakur dagur einhverfu og margt gert til að vekja athygli á einhverfu og að fræða fólk um hana. Hefur margt verið gert í leik- og grunnskólum landsins og hefur Setbergsskóli m.a. annars núna verið með þemaviku um einhverfu þar sem allir hafa tekið þátt, unnið verkefni um einhverfu sem eru svo til sýnis í skólanum.

Í Setbergsskóla er rekin einhverfudeild samhliða skólastarfinu. Börnin fylgja bekkjarfélögum sínum eins og kostur er en Bergið, eins og deildin kallast, er athvarf fyrir einhverfu börnin þegar á þarf að halda og þar er reynt að einstaklingsmiða þörfum þeirra.

Verkefnin sem unnin hafa verið í þemastarfi Setbergsskóla eru til þess fallin að opna umræðuna og auka skilning skólabarnanna á því hvað felst í einhverfunni.

Verkefni nemenda hanga uppi á göngum Setbergsskóla

Nánar er fjallað um þetta í Fjarðarfréttum á fimmtudag.

„Introvert“ er myndband eftir Jóhönnu Ýr Jónsdóttur sem segir eina sögu um einhverfu en einhverfurófið er fjölbreytt og því engir tveir eins.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2