HeimFréttirÁsthildur sigraði í Stóru upplestrarkeppninni - Myndasyrpa

Ásthildur sigraði í Stóru upplestrarkeppninni – Myndasyrpa

Ásthildur Friðriksdóttir Setbergsskóla sigraði í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var fyrir skömmu í þrítugasta sinn.

Átján nemendur  úr sjöundu bekkjum grunnskólanna í Hafnarfirði kepptu í upplestri í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var fyrir skömmu.

Í fyrstu umferð lásu þau kafla úr Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson. Í annarri umferð lásu þau ljóð eftir fjölda ljóðskálda og í þriðju umferð lásu þau ljóð að eigin vali.

Öll komu þau greinilega vel undirbúin frá sínum skóla og lásu af miklu öryggi og því hefur val dómnefndar ekki verið létt.

Þrjú efstu í keppninni ásamt fulltrúum skóla sinna.

Það var mikil spenna þegar úrslitin voru kynnt. Í fyrsta sæti varð Ásthildur Friðriksdóttir úr Setbergsskóla, Arna Hlín Ýmisdóttir úr Lækjarskóla varð í öðru sæti og Ómar Þór Karlsson úr Hraunvallaskóla varð í því þriðja.

Voru þau og fulltrúar skóla þeirra leyst út með verðlaunaskjali og gjöfum.

Þrjátíu ár frá fyrstu keppninni

Stóra upplestrarkeppnin hófst í Hafnarfirði árið 1996 og fimm árum síðar var hún haldin um allt land. Ingibjörg Einarsdóttir, einn þriggja upphafsmanna keppninnar, stýrði keppninni í síðasta sinn en árið 2013 fékk hún fálkaorðuna fyrir framlag sitt við að efla lestrarkunnáttu barna.

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, hvatti unga fólkið til dáða.

Hátíðarbragur var á keppninni, forseti Íslands, Halla Tómasdóttir flutti ávarp og hjálpaði til við að afhenda keppendunum bækur.  Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra flutti ávarp og bæjarstjórinn, Valdimar Víðisson ávarpaði börnin og gesti og þakkaði Ingibjörgu sérstaklega fyrir hennar framlag.

Bæjarstjóri þakkaði Ingibjörgu fyrir hennar framlag.

Jóhanna Margrét Logadóttir, sigurvegari keppninnar í fyrra kynnti skáld keppninnar og Valdís Silja Daðadóttir, sem varð í öðru sæti í fyrra, kynnti ljóðaþáttinn.

Þá las Pietro Sismo Fortugno ljóð á ítölsku en hann er nemandi í Setbergsskóla.

Nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar léku í upphafi keppninnar og talkór nemenda í Áslandsskóla kom fram.

Ari Fannar Eðvaldsson úr 6. bekk í Áslandsskóla var heiðraður fyrir boðskort keppninnar en hann sigraði í samkeppni um það.

Smásagnakeppni grunnskólanna

Þá voru veittar viðurkenningar í smásagnakeppni grunnskólanna.

  • Lára Sigurbjörnsdóttir í Áslandsskóla var í fyrsta sæti fyrir söguna Gáttin til friðar.
  • Moritz Wilke Kjartansson í Lækjarskóla varð í öðru sæti fyrir Hugarvinur.
  • Og sameiginlega í þriðja sæti urðu þau Kári Steinar Magnússon í Víðistaðaskóla fyrir söguna Hvað ertu að hlusta á og Elísa Guðrún Magnúsdóttir í Setbergsskóla fyrir söguna Í skugga bókasafnsins

Þau tóku þátt

  • Ásthildur Friðriksdóttir, Setbergsskóla
  • Óli Freyr Arnórsson, Skarðshlíðarskóla
  • Aldís Von Árnadóttir, Víðistaðaskóla
  • Andrea Líf Grétarsdóttir, Áslandsskóla
  • Ómar Þór Karlsson, Hraunvallaskóla
  • Saga Sif Agnesardóttir, Hvaleyrarskóla
  • Edda Margrét Reid, Engidalsskóla
  • Arna Hlín Ýmisdóttir, Lækjarskóla
  • Ásdís Inga Stephensdóttir Midgley, Öldutúnsskóla
  • Þórir Sveinn Leósson, Áslandsskóla
  • Anika Rut Stefánsdóttir, Skarðshlíðarskóla
  • Áróra Lea Goðadóttir, Lækjarskóla
  • Bríet Ýr Daðadóttir, Öldutúnsskóla
  • Sara Sif Matus, Setbergsskóla
  • Elmar Óðinn Davíðsson, Engidalsskóla
  • Anna Sól Ísbrá Eiríksdóttir, Víðistaðaskóla
  • Lára Sóley Erlendsdóttir, Hraunvallaskóla
  • Hilmar Trausti Ingvarsson, Hvaleyrarskóla

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2