Í ár eru 50 ár liðin síðan fyrstu stúdentarnir voru útskrifaðir frá Flensborgarskólanum.
Í tilefni þess kemur út nk. haust afmælisrit Flensborgarskólans.
Í bókinni verður rakin saga skólans í stuttu máli, auk þess sem um 20 stúdentar rifja upp á skemmtilegan hátt veru sína þar.
Fjöldi mynda mun prýða bókina, sem er í ritstjórn Símonar Jóns Jóhannssonar, sem kennt hefur við skólann í 40 ár.
Í bókinni, sem Bókaútgáfan Hólar gefur út, verður Tabula gratulatoria og þar gefst áskrifendum að ritinu kostur á að senda skólanum kveðju en áskriftarverð þess verður 7.980 kr. Hægt er að panta áskrift í netfanginu holar@holabok.is og í síma 692 8508.