Nú í vikunni byrjar Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar að setja aðvörunarmiða á bíla sem er lagt ólöglega í bænum.
Til að byrja með verða einungis settar viðvaranir á bíla sem er lagt ólöglega en á næstu vikum mun Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar byrja að leggja á stöðugjöld á ólöglega lagða bíla,
Markmið eftirlitsins er að bæta umferðaröryggi, tryggja aðgengi og stuðla að betra flæði fyrir íbúa og gesti bæjarins.
Einn bílastæðavörður hefur verið ráðinn til að sinna þessu verkefni.




