HeimFréttirAtvinnulífAðalskoðun hefur opnað nýja glæsilega skoðunarstöð

Aðalskoðun hefur opnað nýja glæsilega skoðunarstöð

 

Aðalskoðun hefur opnað nýja glæsilega skoðunarstöð að Suðurhellu 9 hér í bæ.

„Opnunin er stórt skref fyrir þjónustu við bílaeigendur í Hafnarfirði og nágrenni, þar sem nýja stöðin býður upp á enn betri aðstöðu fyrir ökutækjaskoðanir. Lögð hefur verið sérstök áhersla á að mæta þörfum bæði almennra bíleigenda og þeirra sem koma með stærri ökutæki,“ segir Hulda Þórunn Ottesen, markaðsfulltrúi hjá Aðalskoðun.

Á nýju stöðinni er mjög góð aðstaða til að skoða vörubíla, rútur og aðra stóra bíla, auk fólksbíla, húsbíla, fellihýsa, hjólhýsa, mótorhjóla og allra gerða af vögnum. Þar er einnig háþróaður tækjabúnaður sem gerir skoðanir enn nákvæmari og skilvirkari, ásamt fljótlegri og þægilegri þjónustu og rúmgóðri biðaðstöðu með góðu aðgengi.

Opnunin var gerð formleg þar sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, kom og klippti á borða ásamt Björgu Gilsdóttur, starfsmanns Aðalskoðunar

 

Björg Gilsdóttir og Valdimar Víðisson klippa á borðann.

„Það var virkilega ánægjulegt að fá hann til að taka þátt í þessum tímamótum fyrir þjónustuna á svæðinu,“ segir Hulda og segir að með þessari nýju stöð vilji Aðalskoðun styrkja enn frekar stöðu sína sem traustur valkostur fyrir alla bílaeigendur sem leggja áherslu á faglega skoðun, öryggi og góða þjónustu.

Aðsendar myndir

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2