Áætlað er að framkvæma fyrir 10,6 milljarða kr. á árinu 2026 en þar af eru tæpir 2,4 milljónir sem fara í framkvæmdir B-hluta fyrirtækja, 1,5 milljarður hjá Vatnsveitu og Fráveitu, 630 hjá Hafnarsjóði og 250 milljónir kr. fara til kaupa Húsnæðisskrifstofu á íbúðum. Á næstu þremur árum er gert ráð fyrir 550 milljónum kr. til byggingar nýs húsnæðis Hafnarskrifstofu en núverandi húsnæði víkur fyrir byggingu Tækniskólans.
Það eru því 8,2 milljarðar kr. sem fara til annarra framkvæmda. Langhæsta einstaka verkefnið er Hamranesskóli en 2 milljarðar eru áætlaðir til framkvæmda við hann á árinu.
Nýtt hverfi á Þorlákstúni og í Vatnshlíð
2,6 milljarðar kr. eru áætlaðar til gatnaframkvæmda þar sem 800 milljónir fara í gatnagerð Hellnahraun 4, fyrsta áfanga, sem er að mestu í óröskuðu hrauni sunnan við skotæfingasvæðið og kvartmílubrautina með tengingu við nýjasta iðnaðarsvæðið við Krýsuvíkurveg.
Þá eiga 550 milljónir að fara í gatnagerð í Kapelluhrauni I og II en í því er m.a. Geymslusvæðið. 700 milljónir fara í gatnagerð í 1. og 2. áfanga Áslands 4 og 250 milljónir fara í gatnagerð fyrir nýtt hverfi á Þorlákstúni sem er svæði við Reykjanesbrautina, sunnan Lyngbarðs og norðan Tjarnarvalla þar sem áður átti að rísa gróðurstöð. Þá fara 10 milljónir kr. í undirbúning á gatnagerð í nýju hverfi í Vatnshlið sunnan Ásvallabrautar og vestan Kaldárselsvegar.
Göngu- og reiðleiðir
282 milljónir kr. eru merktar göngu- og reiðleiðum. Af því fara 20 milljónir kr. til nýs göngu- og hjólastígs við Bæjarhraun og 12 milljónir kr. í reiðstíga og lýsingu á reiðstígum. 50 milljónir kr. fara í endurgerð stétta í eldri hverfum og 200 milljónir kr. í stéttir, umferðaröryggismál og grassvæði á nýbyggingarsvæðum.
Þá eru 250 milljónir kr. eyrnarmerktar skv. samgöngusamningi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
235 milljónir í umhverfismál
Áætlað er að verja 235 milljónum kr. í umhverfismál og má þar nefna að 10 milljónir kr. eru áætlaðar í hverfisgarð á Völlum, 30 milljónir kr. í endurgerð svæða í miðbænum, grænkun svæða skv. skipulagi og 30 milljónir kr. í grænkun Valla.
5 milljónir í stækkun Tónlistarskólans
2,4 milljarðar eru áætlaðar til skólamannvirkja og 2 milljarðar af því til nýs Hamranesskóla. 150 milljarðar fara í endurgerðir skóla- og leikskóla, 120 milljónir til lagfæringa á Hvaleyrarskóla, 100 milljónir kr. til breytinga á Menntasetrinu við Lækinn og 5 milljónir fara í undirbúning á stækkun Tónlistarskólans.
607 milljónir í húsnæði íþróttafélaga
Til nýs knatthúss Hauka fara 230 milljónir kr. 160 milljónir í nýtt parket í Kaplakrika og nýja áhorfendabekki, 5 milljónir kr. í endurnýjun hlaupabrautar, 60 milljónir í nýja reiðhöll Sörla, 49 milljónir kr. í stækkun golfskála Keilis, vélaskemmu og hurðir í Hraunkot.
290 milljónir í sundlaugar
150 milljónir kr. fara í endurnýjun á Suðurbæjarlaug, 70 milljónir fara í endurnýjun á Sundhöllinni og 50 milljónir kr. fara í útisvæði Ásvallalaugar og 10 milljónir kr. í viðhald á yfirborði laugar.
550 milljónir kr. í Bókasafnið
958 milljónir kr. fara í framkvæmdir við annað húsnæði. 550 milljónir kr. fara í húsnæði Bókasafnsins í Firði, 200 milljónir í nýjan búsetukjarna við Smyrlahraun og 100 milljónir í endurskipulagningu á húsnæði Ráðhússins.
Þetta er meðal þess sem sjá má í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar 2026-2029 sem samþykkt var í desember.





