HeimFrá ritstjóraSkipulagsmál. Tækniskólinn og Setbergsgöng

Skipulagsmál. Tækniskólinn og Setbergsgöng

Bæjarstjórn hefur samþykkt að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar fyrir árin 2026-2040. Bæjarbúum var boðið að hafa skoðun á skipulaginu en alls ekki er auðvelt að hafa heildarsýn yfir svona mál, jafnvel ekki fyrir þá sem þekkja eitthvað til. Ekki hefur verið áberandi stefna bæjarstjórnar sem aðalskipulag á að endurspegla, hvernig viljum við að bærinn okkar þróist. Nú hefst hið lögformlega ferli og geta bæjarbúar sent inn athugasemdir og tillögur. Spennandi verður að sjá hvernig aðalskipulagstillagan verði kynnt en oft er aðeins horft til lágmarkskrafna í lögum í stað þess að tryggja að bæjarbúar þekki vel til markmiða í uppbyggingu bæjarins.
4Undanfarið hafa bæjaryfirvöld kosið að auglýsa ekki auglýsingar um skipulag í bæjarblaðinu, þó laga og reglugerðarákvæði kveði á um það.
Ásókn í útivist hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum en lítið fer fyrir stefnu um aukið aðgengi að upplandinu og verndun þess. Frekar hefur aðgengi verið hindrað með lokunum auk þess sem stækkun á atvinnusvæðum verður á kostnað ósnortins lands.
Borið hefur á gagnrýni um skort á heildarsýn í skipulagsmálum og er miðbærinn gott dæmi um það. Í stað þess að horfa á miðbæinn í heild sinni hefur bæjarstjórn kosið að uppfæra deiliskipulags hans í bútum. Gagnrýnt hefur verið að verkalýðsfélag komi sér fyrir á besta stað í miðbænum og þó þar fari fram góð og mikil starfsemi þá vantar mikið upp á að nægileg rými séu fyrir verslun og þjónustu í miðbænum. A.m.k. var engin stefna um að starfsemi verkalýðsfélaga, frekar en stjórnmálaflokka ættu að vera á besta stað í miðbænum. Sjálf hefur bæjarstjórnin ákveðið að nýta frekar gott verslunarrými undir bæjarskrifstofur í stað þess að hafa metnað fyrir því að byggja nýtt ráðhús.
Voru það tækifærisákvarðanir sem urðu til þess að samþykkja að Tækniskólinn færi á hafnarsvæðið eða var það markmið í skipulagi? Var gert ráð fyrir þeim umferðarþunga sem fylgja svona stórum skóla og var búið að finna lausn til að tryggja greiða umferð áður en ákvörðun var tekin? Þá er ekki verið að tala um kostnaðinn og heldur ekki mögulegar tekjur en aðeins hefur verið upplýst að uppkaup á húsum og lóðum mun kosta bæinn a.m.k. 5 milljarða króna. Það er auðvitað nauðsynlegt að geta gripið góð tækifæri þegar þau gerast en skipulag þarf þá að vera í samræmi við það. Og ef starfsemi skólans mun valda umferðarvandamálum þá er reiknað með gríðarlegri fjölgun íbúða á svæðinu líka. Hafnarstarfsemin virðist þurfa að víkja á sama tíma og engar ákvarðanir hafa verið teknar upp um aðra höfn.
Hafnfirðingar eru orðnir þreyttir á miklum töfum í umferðinni og engar lausnir eru sjáanlegar. Göng undir Setbergið gætu leyst einhvern vanda en með aukinni byggð og atvinnusvæðum í syðsta hluta bæjarins eykst umferðin sífellt og einnig með aukinni flugumferð. Einhvers konar ofanbyggðarvegur er orðin nauðsyn en ljóst að hann þarf að vera í göngum að hluta enda víða búið að byggja þar sem slíkur vegur hefði getað verið.
En treystum á að bæjarstjórn kynni skipulagsmálin vel og sýni bæjarbúum að við séum viðbúin fjölgun íbúa og umferðar um og í gegnum bæinn.
Guðni Gíslason ritstjóri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2