Enn á ný stendur Hafnarfjarðarbær í samkeppni við eina bæjarblaðið í Hafnarfirði með útgáfu á rándýru blaði fyrir jólin.
Tími bæjarblaðs í Hafnarfirði hlýtur brátt að taka enda sýna bæjaryfirvöld lítinn áhuga á að nýta Fjarðarfréttir sem fréttamiðil til bæjarbúa, jafnvel þó búið að skipta um í brúnni. Sá sem þetta ritar á aðeins níu daga í það að hafa verið ritstjóri bæjarblaðs hér í Hafnarfirði í 24 ár og því tímamót á næsta ári.
Þó reynt sé að styðja við frjálsa fjölmiðla þá er fyrirkomulag þannig að sá styrkur er ekki vænlegur til uppbyggingar. Ekkert er horft til dýrrar dreifingar og prentunar sem blöð á höfuðborgarsvæðinu þurfa að greiða fyrir vegna mannfjöldans og „landsbyggðarblöðum“ sem jafnvel eru gefin út í mjög litlu upphafi er verðlaunað með auka landsbyggðarstyrk. Stórir fjölmiðlar sem eru í eigu hagsmunaaðila hirða langstærst. „En áfram skröltir hann enn,“ eins og segir í Bílavísum sem Ómar Ragnarsson söng.
Nú er að líða að kosningum og enn á ný sjáum við að miðlar Hafnarfjarðarbæjar eru notaði á lymskulegan hátt. Það er ekkert nýtt að klippt sé á borða rétt fyrir kosngar eða framkvæmdum lofað, þó með aukinni meðvitund um heilbrigða stjórnsýslu ætti slíkt ekki að sjást í dag. Enginn ber ábyrgð og við kjósendur erum allt of linir að koma skilaboðum til skila. Flokksræðið kemur í veg fyrir að hægt sé að beina spjótum að einstaklingum sem standa sig illa eða hampa þeim sérstaklega sem vel standa sig. Prófkjörum fer fækkandi og eru þau aðeins fyrir innmúraða og ekki fyrir kjósendur sem ekki vilja binda sig á klafa stjórnmálaflokks.
En nú nálgast jólin og jólaskreytingar birtast á ótrúlegustu stöðum. Hver grein er vafin ljósum eins og vínberin í áramótpartíinu hjá Mister Been. En úr verður falleg ásýnd sem gleður í vetrarmyrkrinu þó óneitanlega sogist hugurinn að kostnaðinum við svona nákvæmnisvinnu. En þetta er fyrir gleðina og getur hún verið of dýru verði keypt
Jólaþorpið verður opnað á morgun, 22 hús verða á Thorsplani og við Strandgötuna sem verður breytt úr vistgötu í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Eins og fram kemur hér í blaðinu er aðsókn söluaðila að húsunum mjög mikill og er það ánægjulegt og vonandi verður Jólaþorpið til þess að fá fleira fólk í miðbæinn til að nýta þá þjónustu sem er þar allt árið.
Stækkun Fjarðar er komin á lokasprettinn og áætlað er að formlega verði opnað í síðustu viku nóvember. Fjölmargar nýjar verslanir opna og aðrar flytja á nýjan stað og væntanlega verður hótelið opnað um mánaðamótin. Þetta ætti að verða til þess að auka líf á Strandgötunni – og kannski, þegar búið verður að taka á bílastæðamálum, verður hægt að gera hana að glæsilegri göngugötu. Þó gatan sé vistgata þá er ekkert í hönnun hennar sem styður við það og skýr og afmörkuð akrein bíla á henni miðri.
Hvort fjölgun íbúa í miðbænum skapi aukið líf sem tapaðist við flutning fjölmargra skrifstofurýma úr miðbænum, skal ósagt látið um, lífs sem skilaði sér í þjónustu og verslunum í miðbænum. Nú er virkilega tími til kominn að uppfæra löngu úrelt og margstagað deiliskipulag miðbæjarins og ekki með bútasaumi sem hófst með breytingum á deiliskipulagi á einum reit. Ef komist verður að niðurstöðu um legu Borgarlínu, sem ekki er í sjónmáli, má ef til vill byggja bílastæðahús og nýta plássið undir fleiri þjónustubyggingar í miðbænum. Bæjarbúar vilja fallegan miðbæ sem býður upp á fjölbreytta þjónustu.
Guðni Gíslason ritstjóri.




