Mánudagur, febrúar 23, 2026
HeimFrá ritstjóraJólaandinn og umferðin

Jólaandinn og umferðin

Vonandi hefur jólaandinn svifið yfir vötnum hjá Hafnfirð­ingum í aðdraganda jóla. Hátíð þegar fjölskyldan er í fyrir­rúmi og við þökkum fyrir það sem við höfum.

Fjölmennt hefur verið í miðbæ Hafnarfjarðar þegar jólaþorpið hefur verið opið og eflaust koma margir í bæinn til að upplifa menninguna í litla miðbænum okkar.
Menningin blómstrar, tónleikahald er meira en á öðrum tímum og söngvar um jólahátíðina eru áberandi.

En kaupæðið herjar á okkur og allt virðist snúast um að kaupa eitthvað fyrir jólin og það hitnar undir bankabókinni hjá mörgum. Gleðin snýst ekki um gjafirnar heldur hugsunina á bakvið þær. Þannig skiptir stærðin og verðmætið litlu máli.

Þó svo beiðnir til Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar hafi sjaldan verið fleiri, þá hafa gjafirnar eflaust sjaldan hafa verið stærri eða verðmætari. Velmegunin hefur flætt yfir okkur en samt börmum við okkur sem aldrei fyrr.

Er kannski kominn tími til breytinga?

..

Hvernig mun umferðin þróast í Hafnarfirði?

Reykjanesbrautin í gegnum Hafnarfjörð er komin að þolmörkum og í raun yfir þau á álagstímum. Fjölgun ferðamanna skýrir hluta, aukin umferð malarflutninga­bíla líka, aukin byggð á Völlum og ör uppbygging á iðnaðarsvæðinu í Hellnahrauni. Nær öll þessi umferð þarf að fara í gegnum Hafnarfjörð. Erfitt er á stundum að komast á milli bæjarhluta þar sem Reykjanesbrautin sker á milli. Fátt virðist vera um möguleika, ofanbyggðavegur virðist hvergi komast og göng undir Setbergið leysir aðeins lítinn hluta vandans. Nýr Tækniskóli á að rísa við suðurhöfnina með á þriðja þúsund nemendur og um 280 starfsmenn.

Bæjaryfirvöld hljóta að þekkja vandann sem þetta mun skapa í umferð um miðbæinn og aðgerðir munu bætast við yfir 4 milljarða króna kostnað sem Hafnarfjarðarbær mun hafa af komu skólans.

Borgarlínan sem bæjarstjórn sýndi lítinn áhuga á í Hafnarfirði mun örugglega skipta máli um umferðaþróun en vandinn er að enginn virðist geta séð fyrir sér hvar hún á að liggja inn í bæninn. Tvær auka akreinar niður Reykjavíkurveginn er ekki eitthvað sem Hafnfirðingar sjá fyrir sér. Við verðum líka aftarlega á merinni, kannski vegna áhugaleysis, og borgarlína út á Vellina er í fjarlægri framtíð.

En hvað þarf að gera til að við notum strætó? Kennum við unga fólkinu að nota strætó með því að vera með risa bílastæði við framhaldsskólana í bænum? Þar sem meira að segja er frítt að leggja!

Nú er 25. starfsár mitt sem ritstjóri bæjarblaðs í Hafnarfirði hafið. Þetta er búið að vera rússibanareið en ánægjuleg að langmestu leyti. Baráttan við bæjarkerfið hefur oft verið ströng og reglulegri útgáfu var hætt í árslok 2019 eftir samkeppni Hafnarfjarðarbæjar í útgáfumálum sem enn stendur yfir. En það voru aðilar í bænum sem kölluðu eftir útgáfu og studdu útgáfuna með viðskiptum sínum. Það er vonandi að bæjarblað geti verið fastur liður í bæjarlífinu næstu áratugi.

Kærar þakkir kæri lesandi og njóttu hátíðar jólanna.

uðni Gíslason ritstjóri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2