Mánudagur, febrúar 23, 2026
HeimFrá ritstjóraAðalskipulag og óvissutímar

Aðalskipulag og óvissutímar

Í aðdraganda jóla var bæjarbúum boðið að segja skoðun sína á endurskoðun á aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Fjölmargir nýttu sér það en nokkuð er víst að þetta fór fyrir ofan garð hjá flestum. Ástæður geta verið margar, tímaskortur, ónægt upplýsingaflæði, áhugaleysi og einnig flókin framsetning.

Það er í raun undarlegt á þessari tækniöld hversu gamal­dags aðferðir eru notaðar við kynningu á skipulagi. Oft bera opinberir aðilar fyrir sér staðla sem nota þarf við gerð skipulags. Eflaust þarf þá að fá þeim stöðlum breytt því erfitt er að sjá kjarnann fyrir þykkum strikum þvers og kruss sem tákna á eitthvað í skipulaginu. Þá er ekkert sem segir að kynningin sjálf þurfi að vera svona ferköntuð. Gott dæmi um skelfilega kynningu er aðalskipu­lagshugmynd fyrir Krýsuvíkurlandið. Gjörbreytt og verri framsetning en í gildandi skipulagi. Almenningur er ekki vanur að lesa teikningar, ekki síst eins og þær birtast í skipulagsvinnu. Hvergi er getið um það sem verið er að breyta og lúslesa þarf saman gildandi skipulag við tillögur. Í umræddri kynningu á Krýsuvík má t.d. sjá að fjölmargar gönguleiðir eru horfnar og fornminjar vantar.

Sé einhver vilji til að fá skoðanir og vilja bæjarbúa fram og ekki síst sérfræði­þekkingu þeirra sem þekkja til, þá þarf að taka upp ný og betri vinnubrögð.

Það eru óvissutímar í heiminum. Stríð er í Evrópu, öfgafólk er sífellt meira áberandi í nær öllum löndum og hatur og óvild sést allt of oft.

Samtök eldri skáta, Skátagildin á Íslandi, hafa allt frá 2001 dreift Friðarloga, sem á uppruna sinn í Betlehem, í kirkjur og til þeirra sem vilja taka á móti honum, sem ljósi samkenndar, vináttu, umburðarlyndis og friðar. Friðarloginn er gjöf sem fylgir ósk um frið á jörðu en það voru skátar í Austurríki sem fyrst sóttu hann til Betlehem og dreifðu honum um Evrópu. Í dag varðveita Karmelsystur Friðarlogann í Klaustrinu allt árið.

Þetta er fallegur siður og þó hann sé eins og lítið sandkorn, þá næst með útbreiðslu boðskapsins sem honum fylgir, að vekja marga til umhugsunar. Friður á ekki upptök sín í fjarlægum löndum eða í stórum samningum. Rót hans er í hjarta hvers og eins.

Guðni Gíslason ritstjóri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2