fbpx
Miðvikudagur, maí 1, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniVerðlaunuð Tónlistarhátíð í Hafnarborg hefst á laugardaginn

Verðlaunuð Tónlistarhátíð í Hafnarborg hefst á laugardaginn

Sönghátíð í Hafnarborg hefst á laugardaginn og stendur til 10. júlí.

Mozart tónleikar, kórtónleikar, fjölskyldutónleikar, óperugala, frumflutningur á íslensku verki, master class nemendatónleikar, íslensk einsöngslög og heimsókn hljóðfæraleikara úr röðum Sinfóníuhljómsveitar Spánar gætu glatt áhugasama tónlistarunnendur.

Á sjötta tug framúrskarandi innlendra og erlendra tónlistarmanna koma fram á átta tónleikum, en hátíðin býður einnig upp á fimm námskeið. Sönghátíð í Hafnarborg fékk Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Takmarkað upplag hátíðarpassa er komið í sölu og fer öll miðasala fram á tix.is. Þema hátíðarinnar í ár er Leiðarljós.

„Vissi ég áður voruð þér, vallarstjörnur um breiða grund, fegurstu leiðarljósin mér. Lék ég að yður marga stund“. Þannig orti Jónas Hallgrímsson í ljóðinu Úr Hulduljóðum, einnig þekkt sem Smávinir fagrir. Ljóð Jónasar er innblástur hátíðarinnar í ár þar sem það minnir okkur á gildi fegurðarinnar, hins smáa og viðkvæma þegar við höfum villst af leið. Ljóð og tónlist geta hjálpað okkur við að tengja við okkur sjálf, umheiminn, náttúruna, sjá samhengið á milli okkar og annarra, veita okkur innblástur og kenna okkur að meta fegurð lífsins allt í kringum okkur.

Á Sönghátíð í Hafnarborg er ekki einungis leitast við að leggja rækt við list augnabliksins, heldur er einnig horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar valdar myndbandsupptökur af tónleikum og viðtöl við söngvara.

Þetta er sjálfstæð hátíð, sem haldin er nú sjötta árið í röð samstarfi við Hafnarborg. Hátíðin í ár nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar, Tónlistarsjóðs, Starfslauna listamanna, Menningarmálaráðuneytis Spánar og Menningarsjóðs FÍH.

Listrænir stjórnendur og stofnendur Sönghátíðarinnar eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui

Tónleikar

Laugardaginn 18. júní kl. 17:

Meiri Mozart! Egill Árni Pálsson tenór, Gunnlaugur Bjarnason baritón, Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað sópran, Karin Björg Torbjörnsdóttir mezzósópran, Oddur Arnþór Jónsson baritón, Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja sönglög, aríur og samsöngsatriði úr óperum eftir W. A. Mozart.

Sunnudaginn 19. júní kl. 17:

Barbörukórinn

Barbara mær. Barbörukórinn undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar flytur nýja íslenska kórtónlist.

Fimmtudaginn 23. júní kl. 20

Diddú master class nemendatónleikar. Nemendur á master class námskeiði Diddúar flytja sönglög og aríur. Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur með á píanó.

Föstudaginn 24. júní kl. 17:

Fjölskyldutónleikar. Jón Svavar Jósefsson baritón og Kristján Hrannar Pálsson píanóleikari flytja fjöruga dagskrá. Börn af tónlistar- og myndlistarnámskeiði koma einnig fram.

Laugardaginn 25. júní kl. 17:

Óperugala. Alexander Jarl Þorsteinsson tenór, Bjarni Thor Kristinsson bassi, Eyrún Unnarsdóttir sópran, Kristín Sveinsdóttir mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr ýmsum ástsælum óperum.

Sunnudaginn 26. júní kl. 17:

Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs. Herdís Anna Jónasdóttir sópran, Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran og CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar frumflytja nýtt verk eftir Kolbein Bjarnason við ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur.

Laugardaginn 2. júlí kl. 17:

Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Kolbeinn Jón Ketilsson, tenór, Francisco Javier Jáuregui, gítar og Sigurður Helgi Oddsson, píanó

Leiðarljós – Íslensk einsöngslög. Diddú (Sigrún Hjálmtýsdóttir) sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Kolbeinn Jón Ketilsson tenór, Francisco Javier Jáuregui gítarleikari og Sigurður Helgi Oddsson píanóleikari flytja íslensk einsöngslög eftir fjölmörg tónskáld.

Sunnudaginn 10. júlí kl. 17:

Hnattferð. Sonor Ensemble (strengjakvintett og píanó) sem skipað er hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Spánar flytur spænska og portúgalska tónlist. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari koma fram undir stjórn Luis Aguirre á tónleikum sem innblásnir eru af fyrstu hnattferð Magellan og Elcano fyrir 500 árum.

Allir tónleikarnir fara fram í aðalsal Hafnarborgar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2