Björn Thoroddsen hefur í mög ár verið með 20 mínútna innskot á Facebook á föstudögum sem hann kallar fridaynight@hringbraut.
Hann er nú að gefa út plötu sem heitir Fridaynight@hringbraut og verður með útgáfutónleika í næsta nágreni, Ægi brugghúsi í gamla Íshúsinu núna á föstudag.
„Fridaynight varð til á Hringbrautinni, ég fæddist á Hringbrautinni, platan er tekin upp á Hringbrautinni og útgáfutónleikarnir eru, liggur við í næsta húsi, Íshúsinu við Strandgötu en þar vorum við strákarnir úr Suðurbænum að æfa hljómsveit 1974 – 75. Þess vegna er staðsetningin á þessari uppákomu engin tilviljun,“ segir Björn í tilkynningu til Fjarðarfrétta.
Húsið verður opnað klukkan sjö, tónleikarnir hefjast kl. 20 og með Bjössa leika Jón Rafnsson á bassa og Fúsi Óttars á trommur.
Miðasala er á Tix.is




