HeimÁ döfinniStórsýningin Æskan og hesturinn verður á Sörlastöðum á sunnudag

Stórsýningin Æskan og hesturinn verður á Sörlastöðum á sunnudag

Stórsýningin Æskan og hesturinn verður haldin sunnudaginn 26. apríl næstkomandi í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla í við Kaldárselsveg.

Þar koma fram efnilegustu hestamenn landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins og er óhætt að segja að sýningin sé hápunktur vetrarstarfsins hjá hinum ungu knöpum.

Hópar ungra hestamanna frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Mána, Spretti, Sóta og Sörla sýna fjölbreytt atriði sem þeir hafa æft í hverju félagi fyrir sig. Börn úr hestamannafélögunum Geysi og Þyt munu einnig koma í heimsókn og sýna listir sínar.

Sýningin hefst kl. 14 og er frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

Sigurbjörn Bárðarson, tamningameistari mun setja sýninguna en sýningarstjórn er í höndum Hilmars Guðmannssonar.

Að sýningu lokinni verður í boði að fara á hestbak hjá Íshestum, en þar verður teymt undir börnum sem vilja að fara á hestbak.

Sýningin hefur aldrei verið haldin í Hafnarfirði en hún var haldin árlega til 2020 og nú er verið að endurvekja þessa skemmtilegu sýningu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2