Sýningarlok og leiðsögn í Hafnarborg

Síðustu forvöð að sjá sýningar sem nú standa yfir í Hafnarborg

Frá sýningunni Fyrirvara í Hafnarborg

Á sunnudaginn eru síðustu forvöð að sjá sýningarnar Fyrirvara, eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair, og Teikningar/skissur í leir og textíl, eftir Kristínu Garðarsdóttur. Að því tilefni verður boðið upp á leiðsögn um sýningarnar kl. 14 með hönnuðunum, ásamt forstöðumanni Hafnarborgar, Ágústu Kristófersdóttur, og Búa Bjarmari Aðalsteinssyni, vöruhönnuði. Sýningarnar voru settar upp í tilefni af HönnunarMars í ár.

Sýning Brynjars Sigurðarsonar og Veroniku Sedlmair, Fyrirvari, miðar að því að þýða eða tengja saman „hluti“ í umhverfinu við hugmyndir og hugleiðingar að nýjum „hlutum“ en á sýningunni verður sköpunarferlið sjálft sýningarefnið. Vinna er séð sem eins konar röð möguleika og uppspretta fyrir nýjungar. Hljóð verður kveikja að hlut og ljósmynd spinnur af sér formæfingar í teikningu. Markmið sýningarinnar er að nýta og sýna öll þessi stig eða setja fram eins konar kortlagningu á tengingum milli mismunandi hluta og viðfangsefna, að myndgera ferli, hugmyndir og uppsprettur.

Sýning Kristínar Garðarsdóttur, Teikningar/skissur í leir og textíl, er óður til skissunnar, upphafsins og tilraunanna, þar sem hugmyndirnar eru frjálsar og flæða óhindrað úr einu í annað. Vinnan hefst með skissum og teikningum, sem síðan færast af blaði og yfir í önnur efni. Skissur sem voru unnar á áratugagamlan bókhaldspappír eru yfirfærðar í leir og textíl með ólíkum aðferðum, allt frá einföldum og frumstæðum yfir í hátæknilegar. Afrakstur þessa ferlis eru hlutir sem endurspegla handverk, þekkingu og tækni, þar sem notagildið er stundum skýrt en stundum óljóst.

Ummæli

Ummæli

Skilja eftir athugarsemd

Please enter your comment!
Please enter your name here