„Sumarblíða sefar mæði“ er yfirskrift tónleika Fríkirkjukórsins í Fríkirkjunni í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.
Á tónleikunum verður flutt dagskrá söngferðar kórsins til Sviss í sumar, íslensk þjóðlög, ættjarðarlög, dægurlög og sálmar frá ýmsum tímum.
Fríkirkjubandið leikur einnig og söngkona Kristín Erna Blöndal syngur.
Stjórnandi er Örn Arnarson.