Föstudagur, maí 16, 2025
HeimÁ döfinniSetja upp söngleik byggðan á kvikmyndinni „Með allt á hreinu“

Setja upp söngleik byggðan á kvikmyndinni „Með allt á hreinu“

Leikfélag Flensborgarskólans sýnir á morgun og á laugardag söngleikinn „Með allt á hreinu“ í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar.

„Með allt á hreinu“ er söngleikur byggður á samnefndri kvikmynd sem kom út árið 1982 og hefur lifað góðu lífi síðan.

Söngleikurinn fjallar um baráttu Stuðmanna og Gæranna um sveitaballamarkaðinn á Íslandi. Þær keppast sín á milli um að fá bestu giggin í hinum ýmsu bæjarfélögum á Íslandi, og lenda í ýmsu.

Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir söngleiknum.

Aðstandendur sýningarinnar segja að söngleikurinn sé stórskemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna enda þekkjum við flest lög þessara tveggja hljómsveita.

Tónlistin eru ekki að verri endanum þar sem perlur Stuðmanna og Gæranna fá að hljóma í flutningi leikhópsins.

Eflaust átti sig flestir á því hvaða atriði úr bíómyndinni þessi leikari er að endurskapa.

Sýnt í íþróttahúsi Víðistaðaskóla föstudag og laugardag

Sýningar fara fram í Íþróttahúsinu í Víðistaðaskóla og er miðasala á tix.is.

Sýningar verða 4. apríl kl. 19.30, 5. apríl kl. 14 og kl. 19.30.

Gærurnar

Það lá vel á leikurunum þegar blaðamaður Fjarðarfrétta leit við á æfingu. Hófu þau æfingar í janúar og flestir að stíga sín fyrstu skref á leiksviði en þrjú úr hópnum tóku þátt í uppfærslu leikfélagsins á „Engin venjuleg ávaxtakarfa“ á síðasta ári.

Kristján Rafn, upprennandi söngvari.

Kristján Rafn Oddsson fer með eitt aðalhlutverkið og verður spennandi að fylgjast með söng hans en hann mun taka þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna viku eftir frumsýninguna.

Leikararnir sögðu æfingar hafa gengið upp og niður til að byrja með en mjög vel þegar á leið og voru þeir afskaplega ánægðir með að fá Gunnar Björn sem leikstjóra en eins og kunnugt er hefur Gunnar Björn leikstýrt fjölda leikrita og bíómynda auk þess að vera höfundur að áramótaskaupum.

Æfinging lofaði góðu og ætti enginn að vera svikinn af þessari sýningu.

Leikarar:

  • Hrafn Steinar
  • Kristján Rafn
  • Hrafnhildur Jara
  • Hafdís Helga
  • Óðinn Helguson
  • Kristinn Freyr
  • Kári Þorsteinsson
  • Hildur Karen
  • Pálína Ósk
  • Árveig Ólöf
  • Vala Lóa
  • Ísabella Berg
  • Védís Lea

Fólk sem kemur að sýningunni:

  • Hekla Óskarsdóttir
  • Valeria Cucu
  • Goði Haraldsson
  • Óskar Aðalsteinsson
  • Elmar Þór
  • Ívar Elí

Ljósmyndir: © Guðni Gíslason

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2