fbpx
Fimmtudagur, desember 12, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniLjósmyndir og málverk á tveimur nýjum sýningum í Hafnarborg

Ljósmyndir og málverk á tveimur nýjum sýningum í Hafnarborg

Laugardaginn 9. nóvember kl. 14 verða tvær einkasýningar opnaðar í Hafnarborg.

Þá eru það listamennirnir Pétur Thomsen og Arngunnur Ýr sem munu sýna í safninu.

Í tilkynningu frá safninu segir að báðar sýningar bjóði upp á spennandi sýn á náttúruna og samband manns við umhverfi sitt, þar sem listamennirnir nálgast viðfangsefnið hvor með sínum hætti.

Pétur Thomsen: Landnám

Um er að ræða ljósmyndaröð sem Pétur Thomsen hefur unnið að undanfarin ár en serían hefur ekki verið sýnd í heild áður. Þar er sjónum beint að landsvæðum sem hefur verið raskað og breytt með einum eða öðrum hætti, til að mynda með landnýtingu, námavinnslu, skógrækt, jarðrækt og vegagerð. Ljósmyndirnar eru teknar að næturlægi en ljósmyndarinn lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Við það fá myndirnar á sig vissan eftir-heimsendablæ, þar sem svartur himininn gefur til kynna yfirvofandi vá.
Pétur Thomsen (f. 1973) lauk MFA-prófi í ljósmyndun frá École nationale supérieure de la photographie í Arles, Frakklandi, árið 2004. Áður stundaði hann nám í frönsku, listasögu og fornleifafræði við Université Paul Valéry í Montpellier og listljósmyndun við École supérieure des métiers artistiques í sömu borg. Pétur hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar en árið 2004 hlaut hann til að mynda verðlaun LVMH-samsteypunnar sem þá voru veitt ungum listamanni í 10. Sinn. Hann var svo útnefndur af Musée de L’Élysée í Lausanne sem einn af 50 ljósmyndurum sem líklegir væru til að setja mark sitt á ljósmyndasögu framtíðarinnar í verkefninu reGeneration: 50 Photographers of Tomorrow.

Sýning Péturs stendur til 16. febrúar 2025

Arngunnur Ýr: Kahalii

Á sýningunni getur að líta ný og nýleg málverk eftir Arngunni Ýr, þar sem listakonan beinir sjónum að eigin landnámi á Hawaii, auk þess að leiða hugann að samspili umhverfis, sögu og landnýtingar. Þar býr hún sér nú heimili á fögrum stað þar sem náttúran víkur smátt og smátt fyrir manngerðum byggingum og eru listaverkin þannig samofin marglaga sögu landsins. Fela verkin þannig jafnt í sér persónulegar vangaveltur listakonunnar sem og víðtækari umfjöllun um jarðrask og þróun byggðar, sem gefur áhorfendum að sama skapi tækifæri til að íhuga eigin samband við sögu og umhverfi.

Arngunnur Ýr (f. 1962) útskrifaðist með BFA-gráðu í málaralist frá San Francisco Art Institute árið 1986. Hún var síðar gestanemi við Gerrit Rietveld-akademíuna í Amsterdam, Hollandi, 1989 til 1990 en sneri aftur til Kaliforníu og lauk meistaragráðu í málaralist frá Mills-háskólanum í Oakland árið 1992. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, svo sem úr sjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur og árið 2005 hlaut hún styrk frá Pollock-Krasner Foundation. Verk hennar hafa verið sýnd hér á landi, í Evrópu og Bandaríkjunum og eru verk eftir hana ýmist í eigu opinberra safna, stofnana og einkasafnara, bæði hér á landi sem erlendis.

Sýning Arngunnar stendur til 19. janúar 2025

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2