Myndlistarsýning Halldórs Árna Sveinssonar verður opnuð á alþjólegum baráttudegi verkafólks, 1. maí í Litla Gallerý á Strandgötunni.
Þetta er þriðja sýning hans í þessum litla en vinsæla sýningarými, sem er á milli tveggja húsa sem flestir Hafnfirðingar þekkja, en þau hýstu verslanir Magga úrara og skóverslun Geira Jó.
Halldór lærði myndlist í MHÍ 1982-6, hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum, en auk þess kenndi hann listmálun í yfir 30 ár, einkum í Námsflokkunum.
Þema sýningarinnar kallast á við opnunardaginn 1. maí, og heitir sýningin “Góðra verka fólk”.
Á sýningunni er einungis ein landslagsmynd, en aðrar myndir hverfast um persónu góðra verka fólks. Ekki endilega verkafólks í þröngasta skilningi, heldur líka fólks sem Halldór Árni hefur kynnst á lífsleiðinni – lífs og liðnum – og hefur auðgað mannlífið í Firðinum með góðri nærveru sinni.
Sýningaropnun verður miðvikudaginn 1. maí 16-18 og allir velkomnir!
Sýningin verður opin:
Föstudag 3. maí 13-18
Laugardag 4. maí 12-17
Sunnudag 5. maí 14-17
Þriðjudag – fimmtudag 7.-9. maí 15-18
Föstudag 10. maí 13-18
Laugardag 11. maí. 12-17
Sunnudag 12. maí. 14-17