Margir af fremstu blúsurum landsins stíga á svið í Ægi 220 á laugardaginn og leggja Píeta samtökunum lið á stórtónleikum sem hefjast kl. 15 og standa fram undir miðnætti.
Þrettán hljómsveitir leika, bílasýning frá Krúser og matvagnar verða á svæðinu.
Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til Píeta samtakanna og allt tónlistarfólk gefur vinnu sína til styrktar Píeta.
Fyrir þá sem komast ekki á tónleikana er einnig hægt að styrkja Píeta samtökin beint hér.
Gestir geta farið af svæðinu og komið aftur að vild meðan á viðburðinum stendur.
Miðaverð: 3.900 kr. og er miðasala á midix.is
Dagskrá
- 15.00–15.30, Fógetarnir
- 15.40–16.10, GG Blús
- 16.20–16.50, Blússveit Jonna Ólafs
- 17.00–17.30, MMG
- 17.40–18.10, Hráefni
- 18.20–18.50, Ungfrúin
- 19.00–19.30, Lame Dudes
- 19.40–20.10, CC Fleet
- 20.20–20.50, Björn Thoroddsen
- 21.00–21.30, Krummi Björgvinsson
- 21.40–22.10, Beggi Smári, Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving og Gunnar Örn
- 22.20–22.50, Guðmundur Pétursson
- 23.00–23.30, Ebenezer
Píeta samtökin hvetja alla blúsunnendur, bílaáhugafólk og velunnara Píeta samtakanna til að mæta og eiga ógleymanlegan dag saman við höfnina.




