fbpx
Föstudagur, mars 29, 2024
HeimÁ döfinniÁramótabrenna verður á Ásvöllum

Áramótabrenna verður á Ásvöllum

Áramótabrenna verður í hrauninu fyrir framan íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum kl. 20 á gamlárskvöld. Það eru Knattspyrnufélagið Haukar og Hafnarfjarðarbær sem standa saman að brennunni.

Óheimilt er að vera með flugelda við brennuna.

Að venju má búast við nokkurri umferð á Völlunum á gamlárskvöld og því er mælt með að fólk leggi tímanlega af stað til að njóta brennunnar. Einnig eru íbúar á Völlunum og í nærliggjandi hverfum hvattir til að fara þessa leið fótgangandi ef möguleiki er á því.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2