fbpx
Föstudagur, maí 17, 2024
HeimÁ döfinniAlda Ingibergsdóttir syngur á hádegistónleikum á þriðjudag

Alda Ingibergsdóttir syngur á hádegistónleikum á þriðjudag

Alda Ingibergsdóttir sópransöngkona verður gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda hádegistónleikaraðar Hafnarfjarðar á þriðjudaginn 7. maí.

Munu þær leiða tónleikagesti inn í sumarið með hjartnæmum tónverkum eftir Stolz, Lehár og Arditi.

Alda Ingibergsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún lauk einsöngvaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og fór síðan í framhaldsnám við Trinity College of Music í London, þaðan sem hún útskrifaðist með „Fellowship Diploma“. Meðal hlutverka Öldu eru Pamina í Töfraflautunni, Lillian Russell í The Mother of Us All eftir Virgil Thomson, fyrsti andi í Töfraflautunni, Dísa í Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar, Næturdrottningin í Töfraflautunni, Arzena í Sígaunabaróni Strauss, Helena fagra í samnefndri óperu Offenbachs og káta ekkjan í samnefndri óperettu Lehárs. Þá hefur Alda haldið tónleika víða og komið fram sem einsöngvari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tufts Symphony Orchestra í Boston.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Aðgangur er ókeypis.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2