Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni er landsmönnum boðið að fagna með starfsfóli í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14–16.
Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis stór tímamót fyrir TM sem fagnar 70 ára afmæli. „Það er því sannarlega tilefni til að gera sér glaðan dag saman,“ segir í tilkynningu.
Boðið verður upp á léttar veitingar og góða stemningu m.a. í útibúi Landsbankans á horni Fjarðargötu og Linnetsstígs.
Eru viðskiptavinir hvattir til að líta við og fagna þessum tímamótum með starfsfólkinu.





