HeimÁ döfinni15 hafnfirskir nemendur taka þátt í Krakkabarokki í Hörpu

15 hafnfirskir nemendur taka þátt í Krakkabarokki í Hörpu

FKrakkabarokk er ókeypis fjölskyldudagskrá í Hörpu með þátttöku fimm kennara úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fimmtán nemenda sem leika á fiðlu, selló og blokkflautu auk þess sem sungið verður saman.

Tónleikarnir eru stórir í sniðum, eru hluti af Reykjavik Early Music Festival.

Að sögn Eiríks Stephensen, skólastjórar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar verður þetta án efa mikil upplifun, bæði að fylgjast með og taka þátt í þeim en um 150 hljóðfæraleikarar og söngvarar verða á sviðinu.

Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk, með Diljá Sigursveinsdóttur og Önnu Hugadóttur í fararbroddi, stendur fyrir verkefninu og þátttakendur eru auk Tónlistarskólans Hafnarfjarðar; Kór Hólabrekkuskóla, Kór Hvolsskóla, Drengjakór Reykjavíkur, Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar, Tónlistarskóli Rangæinga, Tónlistarskóli Árnesinga, Tónlistarskólinn á Akureyri og Tónskóli Þjóðkirkjunnar.

Á sunnudaginn kl. 15-16

Tónleikarnir verða í Eldborgarsal Hörpu á sunnudaginn 29.mars kl.15-16. Öll velkomin, ókeypis aðgangur!

Sækja má ókeypis miða hér.

Frábært tækifæri til þess að kynnast tónlistararfi, krafti og sameiningarmætti tónlistarinnar

Segir Eiríkur þetta frábært tækifæri til þess að kynnast tónlistararfi, krafti og sameiningarmætti tónlistarinnar eða eins og við tjáum okkur í tónlistinni: „Viva la musica!“ eða „Lifi tónlistin!“.  Krakkabarokk hefur áður farið fram í Reykjanesbæ 2021, Fella- og Hólakirkju 2023, Hafnarfirði 2024, Selfossi og Suðurlandi 2025.

„Að upplifa stóran atburð sem þennan og sameinast þvert á hljóðfæri, áhugasvið, aldur og fleira hefur án efa áhrif til góðs í uppeldi og eykur vonandi samkennd og samstöðu á milli manna. Leggur kannski lóð á vogarskálarnar að auknum friði í heiminum. Eða eins og við syngjum saman í lokin „Dona nobis pacem“ eða „Gef okkur frið“.

Kennarar úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem taka þátt

  • Helga Aðalheiður Ingibjargar Jónsdóttir,
  • Þórdís Stross,
  • Hlín Erlendsdóttir,
  • Margrét Þorsteinsdóttir,
  • Gréta Rún Snorradóttir

Nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem taka þátt

Fiðlur
  • Haukur Emil Þorrason
  • Jónína Dögg Ívarsdóttir
  • María Lovísa Bjarkadóttir
  • Dóra Hugadóttir
  • Baldur Helgi Einarsson
Blokkflautur
  • Dagur Máni Vikarsson
  • Steinunn Garðarsdóttir
  • Áróra Svala Panadero Karvelsdóttir
  • Kamilla Sól Davíðsdóttir
  • Rósa Kristín Ingvarsdóttir
  • Sylvía Þóra Elísabetardóttir
  • Úlfur Freyr Arnarsson
Selló
  • Óðinn Hrafn Ívarsson
  • Reynir Thomas Kristinsson
  • Viktor Hrafn Fjölnisson

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2