Greint hefur verið frá því að Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Dana í handknattleik karla hafi fengið riddarakross Dannebrogsorðunnar.
Hann var ekki einn um þetta því sjö aðrir Íslendingar fengu riddarakross á sama tíma og tengist veitingin eflaust opinberri heimsókn Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands til Danmerkur.
Þau sem fengu orðuna voru skv. upplýsingum úr danska konungshúsinu:
- Borgar Þór Einarsson, Politisk rådgiver for Udenrigsministeren
- Böðvar Guðmundsson, Forfatter
- Guðmundur Guðmundsson, Landstræner for dansk herrehåndbold
- Hulda Þórisdóttir, Docent, Islands Universitet
- Jóhann Sigurðsson, Forlægger
- Sigríður Eyþórsdóttir, Dirigent
- Tryggvi Ólafsson, Kunstner
- Veturliði Þór Stefánsson, Ambassaderåd ved Islands Ambassade


