HeimFréttirAtvinnulífStærsta hótel landsins rís í Hafnarfirði

Stærsta hótel landsins rís í Hafnarfirði

N1 hefur reist rúmlega 8.500 fermetra dekkjahótel og þjónustumiðstöð við Borgahellu í hér í bæ.

Þar verður hægt að geyma allt að 110.000 dekk, auk þess sem boðið verður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir bæði fólksbíla, vörubíla og vinnuvélar. Aðstaðan opnaði fyrr í þessari viku og er byrjuð að taka á móti viðskiptavinum.

Stóraukin eftirspurn eftir geymslu dekkja

„Við höfum undanfarin ár fundið fyrir stóraukinni eftirspurn eftir geymslu dekkja. Með þessu nýja húsnæði erum við að auka afköstin okkar til muna og komum til með að geta þjónustað allt að sex fólksbíla í einu ásamt vinnutækjum,“ segir Hermann Elí Hreinsson, forstöðumaður bílaþjónustu hjá N1.

N1 hóf einnig að leigja nagladekk til skemmri tíma. Þjónustan er sögð henta meðal annars fólki sem þarf tímabundið á nagladekkjum að halda vegna ferðalaga út á land.

Nýja húsnæðið verður miðlægt dekkjahótel N1 fyrir höfuðborgarsvæðið og mun rúma allt að 110.000 dekk. Á staðnum verða jafnframt dekkja- og smurverkstæði, smáviðgerðir, eldsneytisdælur og þvottaaðstaða fyrir bæði fólksbíla, vörubíla og önnur tæki. Á neðri hæð verður afgreiðsla og verslun þar sem viðskiptavinir geta beðið á meðan þjónusta fer fram. Gert er ráð fyrir að rúmlega tuttugu manns muni starfa í húsnæðinu þegar starfsemin fer almennilega af stað.

Dekkin þvegin, mynduð og ástandsskoðuð

Í tilkynningu frá N1 segir að fyrirtækið hafi einnig fundið fyrir auknum áhuga frá húsfélögum sem vilja losa sameiginlegar geymslur við dekk. Dekk geta tekið mikið pláss og aukið eldhættu, en í nýja dekkjahótelinu verða þau geymd við öruggar og skipulagðar aðstæður.

Öll dekk sem koma til geymslu fara í gegnum sérstaka dekkja- og felguþvottavél. Að því loknu eru þau mynduð og ástand þeirra skráð.

„Viðskiptavinurinn fær myndir og upplýsingar um ástand dekkjanna þannig að hann hafi alltaf skýra yfirsýn yfir þau. Komi í ljós að dekk séu farin að slitna eða þarfnast endurnýjunar, ráðleggjum við viðskiptavininum næstu skref svo hann geti tekið upplýsta ákvörðun með góðum fyrirvara. Ásamt því að sinna ábyrgri förgun þeirra dekkja sem ekki er lengur hægt að nota.“ – bætir Hermann við.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2