HeimFréttirMeirihlutinn bakkaði með áformin eftir mótmæli íbúa

Meirihlutinn bakkaði með áformin eftir mótmæli íbúa

Birt hefur verið frétt á vef Hafnafjarðarbæjar þar sem tilkynnt hefur verið að hætt hafi verið við áform um uppbyggingu tímabundinna íbúða fyrir verkafólk við Krýsuvíkurveg, m.a. með hliðsjón af sjónarmiðum sem komu fram í samtali við íbúa.

Segir í fréttinni að meirihlutinn hafi tekið þessa ákvörðun og hafi verið samstíga í þessari ákvörðum. Ekki kemur fram hvar þessi ákvörðun var tekin.

Þá segir að ákvörðunin hafi verið tekin að undangenginni yfirferð á forsendum verkefnisins, meðal annars með hliðsjón af sjónarmiðum sem fram hafa komið í samtali við íbúa.

„Við töldum þetta metnaðarfulla og áhugaverða hugmynd til að mæta raunverulegri þörf á húsnæðismarkaði. Við höfum hins vegar farið yfir forsendur verkefnisins í ljósi þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið, meðal annars á íbúafundi sem við héldum um málið. Niðurstaða okkar er sú að rétt sé að falla frá áformunum. Það er eðlilegur hluti af ábyrgri ákvarðanatöku að endurmeta verkefni þegar aðstæður kalla á það,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.

Í fréttinni segir: „Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að sú þörf sem verkefninu var ætlað að mæta sé enn til staðar og óleyst. Það er vel þekkt að of margir búa við þröngan kost í óleyfilegu húsnæði sem uppfyllir ekki kröfur um öryggi og aðbúnað. Slíkar aðstæður eru óásættanlegar og mikilvægt að leita áfram leiða til úrbóta. Mikilvægt er að sveitarfélög hefji samtal um það hvernig hægt sé að leysa þennan vanda.“

Mikil mótmæli og ekkert samráð

Ekkert samráð var haft við íbúa þegar samkomulag var gert við Styrkás ehf. um uppbyggingu um 130 húseininga með u.þ.b. 260 íbúðareiningum ætluðum starfsmönnum í verkefnatengdri vinnu á 10 ha landsvæði.

Það sem undarlegt var við samninginn að þarna var í raun og veru að úthluta einu fyrirtæki réttinn til framtíðar uppbyggingar á svæðinu

Mikil gagnrýni kom á forsendur þessarar áforma, ekki síst að þarna ættu erlendir starfsmenn að búa, án fjölskyldna á afmörkuðu svæði.

Ekkert samráð var haft áður en samkomulagið var gert.

Frétt um áformin

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2