HeimUmræðanÞjálfa íslenskuna í Bókasafninu

Þjálfa íslenskuna í Bókasafninu

Þorsteinn Valdimarsson skrifar

Nú í september hófu sjálfboðaliðar Rauða krossins vikulegt starf á Bóka­safni Hafnarfjarðar, þar sem tekið er á móti þeim sem vilja efla færni og sjálfs­traust í beitingu íslenskunnar. Oft fara ný verkefni rólega af stað en móttökur á fyrsta fundi okkar á Bókasafninu fóru fram úr væntingum – það er sannarlega eftirspurn eftir svona starfi.

Af minni reynslu skiptist tungumála­lærdómur í fernt, að lesa, skrifa, hlusta og tala. Mörg fullorðinna sem læra nýtt tungumál eiga erfiðast með að taka skrefið og byrja að tala málið. Við leggjum okkar að mörkum með því að bjóða samkomustað, opinn öllum, þar sem við hittumst og tölum saman íslensku.

Áhersla er á að skapa öruggt og vina­legt umhverfi. Það má gera mistök og við æfum okkur án dómhörku. Leið­réttingar verða fyrst gagnlegar þegar fólk veltir því fyrir sér hvernig sé réttast að segja hlutina. Við gefum fólki tíma til að hugsa og finna sitt svar. Aukinheldur bjóðum við upp á notalegan sam­komu­stað þar sem fólk getur eflt tengslanet sitt. Bókasafnið er einmitt slíkur staður og gaman var að sjá í fyrsta skiptið að nokkrir þátttakenda ílengdust þar eftir að hópastarfinu lauk.

Íslenskumælandi sjálfboðaliðar stýra og hafa umsjón með spjallinu, en jafningjafræðsla er einnig mikilvægur partur – við lærum líka mikið af því að umgangast aðra sem eru á svipuðum stað og við, og reynum við því að getuskipta í hópa.

Með réttu grunnþjálfuninni geta allir sem tala íslensku og hafa opinn hug tekið þátt í þessu starfi og hjálpað okkur að mæta þeim fjölmörgu sem hafa einlægan áhuga á að bæta færni sína í íslenskunni. Hópurinn starfar nú einu sinni í viku í Hafnarfirði, en það væri hægt að gera meira og mæta fleirum ef sjálfboðaliðunum fjölgar. Ef þú gætir séð fyrir þér að ganga til liðs við sjálfboaliða Rauða krossins í þessu starfi hlakka ég til að heyra í þér.

Þorsteinn Valdimarsson
verkefnastjóri hjá Rauða krossinum.

Greinin birtist í 10. tbl. Fjarðarfrétta, 1. október 2026

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2