HeimKynningFluttu úr Reykjavík í glæsiíbúð í Firði

Fluttu úr Reykjavík í glæsiíbúð í Firði

Hann er hrifnastur af sjávarútsýninu en hún er hrifnust af fallegu húsunum í bænum

Í einni af hinum nýju og glæsilegu íbúðum í Firði búa þau Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri 220 Fjörður ehf. og kona hans Rut Hreins­dóttur.

Góð tengsl við Hafnarfjörð

„Mín fyrstu kynni voru þegar ég starfaði sem ungur drengur á sumrin í Glerborg, glerverksmiðju sem var á Dals­hrauninu,“ segir Guðmundur Bjarni. „En síðan fór ég að vinna hér sem framkvæmdastjóri húsfélagsins hér í Firði fyrir um 14 árum.“

Arnarhraunið og Colas

„Ég átti tengsl hingað sem krakki því fósturbróðir mömmu bjó hérna,“ bætir Rut við. „Ég var mikið á Arnarhrauninu og fór oft að gefa öndunum á Læknum.

Seinna vann ég í sjö ár úti í hrauni hjá Hlaðbæ Colas og sótti þá alla þjónustu í Hafnarfjörð, eins og í Fjarðarkaup.“

Vinnan hefur sameinað fjölskylduna

„Það má segja að Fjörður sameini fjölskylduna,“ segir Guðmundur. „Við höfum öll tekið þátt. Rut vann mikið í uppbyggingu Fjarðar með mér eftir að hún greindist með krabbamein árið 2018. Þá unnum við markvisst að þessu verkefni saman,“

„Svo þegar við heimsóttum dóttur okkar til Ósló á þessum tíma sáum við nútímalegt bókasafn þar og það kveikti hugmyndina hjá Guðmundi,“ bætir Rut við.

„Við sáum að Fjörður þyrfti meiri þjónustu til að laða fólk að. Við vildum skapa samkomustað, hittingsstað fyrir alla með bakaríi, veitingastað og skemmti­legum verslunum í leiðinni,“ segir Guðmundur.

Stærri og samkeppnishæfari

„Við höfum stækkað verslunar­mið­stöðina úr 12.500 fermetrum í 21.000 fermetra. Þetta gerir okkur sam­keppnis­hæfari við Kringluna og Smáralind, en við höldum í sérstöðuna. Hér eru minni einingar þar sem eigandinn er oft sjálfur á bak við borðið.

Svo er það bókasafnið á annarri hæð­inni sem er risastórt og dregur marga gesti að.“

Strand Hotel Apartments

Horft yfir á þakhæð hótelsins

Í nýjum Firði eru ekki aðeins nýjar verslanir, bókasafn og íbúðir, þar er núna komið glæsilegt hótel. „Hótelið hefur gengið mjög vel,“ segir Guð­mundur. „Við opnuðum í desember og nýtingin hefur verið um 90% í sumar og við horfum mjög björt­um augum á framhaldið hér í Hafnarfirði. Sjá nánar á strandapartments.is

Flutt í vinnuna

Fjörður hefur fengið endurnýjað hlutverk

„Upplifunin af því að hafa sjálf flutt inn í eina af glæsiíbúðunum í húsinu. Sú upplifun er æðisleg,“ segir Guðmundur. „Þótt það sé smá skrítið að vera fluttur inn í vinnuna og vera bara tvær mínútur að ganga á skrifstofuna. Útsýnið er stórglæsilegt, annað hvort yfir höfnina eða gamla bæinn. Mér finnst þessi bæjarbragur í Hafnarfirði alveg ein­stakur; þetta er eins og lítið þorp þar sem fólk tekur manni opnum örmum.“

„Mér finnst dásamlegt að horfa inn í bæinn,“ segir Rut. „Það gefur mér til­finn­ingu svolítið eins og ég sé í norsk­um bæ. Húsin eru svo falleg og vel við haldin. Ég hef verið dugleg að draga vinkonur mínar og ættingja úr Reykjavík hingað til að sýna þeim hvað Hafnar­fjörður hefur upp á að bjóða.“

Enn hægt að fá íbúð

Glæsilegt útsyni úr einni íbúðinni

Enn er hægt að næla sér í glæsiíbúð í nýbyggingu sem Arkitektauppreisnin á Íslandi útnefndi eftir kosningu sem fallegustu nýbygginguna á Höfuð­borgarsvæðinu.
Íbúðirnar í húsinu eru frá 54 til 208 m², full innréttaðar. Stórar svalir og magnað útsýni eru einkennandi fyrir íbúðirnar. Stutt er í kaffihús og veit­inga­staði og frábært tækifæri til að búa í miðbæ Hafnarfjarðar.

Stórar þaksvalir eru í mörgum íbúðanna

Fólk er hvatt til að skoða úrvalið á 220midbaer.is og panta skoðun.

Greinin birtist í 10. tbl. Fjarðarfrétta, 1. október 2026.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2