Út er komin ljóðabókin Syngur í skógi, níunda bók hafnfirska ljóðskáldsins Draumeyjar Aradóttur.
Síðustu þrjár bækur hennar, Varurð, Einurð og Brimurð, urðu allar metsölubækur og hlutu afbragðs dóma og umsagnir, jafnt hjá bókmenntagagnrýnendum og lesendum.
Syngur í skógi felur í sér frásagnir og ljóð sem fléttast saman í magnaða ljóðför inn í myrkan frumskóg, þar sem ógnir leynast í hverju rjóðri. Samtímis ferðast ljóðmælandi inn í myrkvið eigin huga.

Útgáfuhóf verður miðvikudaginn 2. september kl. 17 á Loftinu við Bankastræti 7, 4. hæð.
Þar mun Draumey lesa úr bókinni og veita bókaverðlaun þeim sem unnu í getrauninni um rétta titilinn. Kynnir verður Íris Ólafsdóttir, sem einnig á málverkið á bókarkápu.
Bókin verður seld á kynningarverði á staðnum en fæst jafnframt í verslunum Pennans-Eymundsson um land allt og Bókakaffinu í Ármúla og á Selfossi.
Útgefandi er bókaútgáfan Sæmundur.




