HeimFréttirHátíðin Heimar og himingeimar fær alþjóðleg keppnisréttindi í „cosplay“

Hátíðin Heimar og himingeimar fær alþjóðleg keppnisréttindi í „cosplay“

Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar, sem haldin verður í Bókasafni Hafnarfjarðar 4.-6. september nk., hefur fengið réttindi til að halda íslensku undankeppnina fyrir Nordic Cosplay Championship.

Sigurvegari undankeppninnar í Hafnarfirði keppir fyrir hönd Íslands í úrslitunum NCC sem er haldin á NärCon í Svíþjóð, en þar er ein stærsta cosplay-keppni Evrópu með um þrjátíu þúsund gesti árlega.

Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar í Bókasafni Hafnarfjarðar verður þar með ein af aðeins 16 opinberum undankeppnum keppninnar sem haldnar verða víðs vegar um heiminn árið 2026.

Meðal þátttökulanda eru auk Íslands; Bandaríkin, Kanada, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Spánn og Norðurlöndin. Á næsta ári bætast svo Ástralía og Pólland í hópinn.

Mikil viðurkenning

„Þetta er gríðarleg viðurkenning fyrir Heima og himingeima og íslenska cosplay-samfélagið,“ segir Unnur Helga Möller, verkefnastjóri Heima og himingeima. „Íslendingar hafa lengi vel stundað að mæta inn í sport af krafti, og Cosplay er ekkert öðruvísi.“

Hvað er Cosplay?

Cosplay er skapandi búningalist þar sem fólk endurskapar þekktar persónur eða hannar eigin búninga sem tengjast ákveðnum sögu- og ævintýraheimum. Horft er til handverks, hugmyndavinnu, útfærslu og framkomu á sviði við mat á keppendum.

Keppt verður í þremur flokkum á Heimum og himingeimum:

  • Ungliðaflokki fyrir þátttakendur yngri en 14 ára
  • Cosplay-flokki fyrir 14 ára og eldri
  • Handverksflokki þar sem meira en 60% búninganna þurfa að vera gerð frá grunni af keppandanum sjálfum

Sigurvegari handverksflokksins öðlast rétt til að keppa fyrir Íslands hönd í Nordic Cosplay Championship á NärCon í Svíþjóð.

Metskráning í handverksflokknum

„Við eigum frábært fólk sem verður okkur til sóma, það er ég viss um. Við sjáum líka metskráningu í handverksflokkinn hjá okkur í ár,“ segir Unnur.

Hátíðin Heimar og himingeimar var fyrst haldin árið 2024 og mættu fimm þúsund  manns þetta fyrsta ár. Árið eftir hafði hún meira en tvöfaldast og um tíu þúsund heimsóknir voru skráðar yfir hátíðarhelgina.

Hátíðin verður haldin í Bókasafni Hafnarfjarðar í Firði dagana 4.–6. september. Aðgangur og þátttaka eru ókeypis.

Skráning í cosplay-keppnina er hafin á heimasíðu Heima og himingeima.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2