Hafnarfjarðarkaupstaður og BL – Sævarhöfða hafa ritað undir viljayfirlýsingu að BL byggi höfuðstöðvar sínar við Reykjanesbraut á nýrri allt að 41.000 m² lóð norðan við Íshellu, Rauðhellu og Móhellu.
Í viljayfirlýsingunni, sem sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 20. ágúst sl. segir að BL – Sævarhöfði ehf. mun byggja upp höfuðstöðvar sínar á lóðinni og muni Hafnarfjarðarbær vinna með stjórnendum fyrirtækisins að deiliskipulagi á lóðarinnar, til að ná fram þeirri nýtingu sem Hafnarfjarðarbær og BL – Sævarhöfði séu sammála um.
Aðalskipulag er að klárast vegna lóðarinnar og fyrirhugað er að deiliskipulag klárist á þessu og næsta ári þannig að
lóðin verði tilbúin til framkvæmda á árinu 2027.
Bifreiðaumboð í Hafnarfjörð
Í lok árs birti Hafnarfjarðarbær frétt á vefsíðu sinni að Tesla á Íslandi hafi fest sér húsnæði undir nýjar höfuðstöðvar sínar að Borgarhellu 6 í Hafnarfirði. Þar kemur fram að Bygginga- og fasteignafélagið Bæjarbyggð muni reisa höfuðstöðvarnar og leigja Tesla húsnæðið. Afhending á húsnæði er áformuð um áramótin 2026/2027.






