Álfahátíð verður í Hellisgerði n.k. sunnudag 16. ágúst kl. 13-16.
Álfar, ævintýri og gleði taka yfir garðinn segir í tilkynningu en Álfavinir okkar, Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur verða á staðnum ásamt Þorra og Þuru.
Fjölskylduskemmtun verður um allan garð þar sem börn og börn í anda fá að leika sér, hlæja og dreyma, en frítt er inn.
Á dagskrá verður m.a. sirkussmiðja, dansálfar verða á vappi, sápukúlur, sykurpúðar, útileikir og andlitsmálun. Íþróttaálfurinn og Solla mæta, Páll Óskar verður á staðnumog fl.
Kaffihúsið Helliskaffi verður opið og býður upp á alls kyns ljúffengar kræsingar til sölu.
Allir eru velkomnir.





