Undir venjulegum kringumstæðum væri þema þessa blaðs eingöngu „Hafnfirsk æska“. En sveitarstjórnarkosningar setja strik í reikninginn og auðvitað lofa allir flokkar enn betri bæ fyrir hafnfirkska æsku.
Mikilvægi fjölbreytts æskulýðsstarfs er gríðarlega mikilvægt enda hafa ekki allir sömu þarfir og langanir. Gott starf getur verið víða að finna, hvort sem það er líkamleg hreyfing eða andleg og siðferðileg uppbygging. Þó allir vilji gera sitt besta snýst ekki allt um að sigra andstæðing. Keppni getur verið góð til að ná fram metnaði til að ná árangri en þá þarf lík að læra að tapa. Við munum öll tapa í einhverju í lífunu og við þurfum að læra það, á sama hátt og að sigrinum fylgi auðmýkt.
Skólarnir, kirkjurnar, skátarnir, íþróttafélögin og leikfélagarnir eiga allir sinn þátt í að hjálpa börnum að ná þroska. En foreldrarnir verða alltaf mikilvægastir og stuðningur þeirra við æskulýðsstarf barnanna er mikilvægur. Hvað sagt er í kringum börnin skiptir miklu máli, því lítil eyru heyra vel.
Við Hafnfirðingar eigum frábært bæjarstæði og upplandið okkar er perla fyrir alls kyns útivist með börnunum okkar.
Kosningar verða 16. maí og sex flokkar bjóða fram í Hafnarfirði. Allir keppast við að lofa bæjarbúum einhverju, peningarnir eiga að koma af trjánum og enginn virðist hafa áhyggjur af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Allir oddvitarnir vilja verða bæjarstjórar, þó svo oddviti Viðreisnar hafi svarað Já/Nei sem er auðvitað ekki nein afstaða. Vel launað embætti sem gerir engar menntunarkröfur ef þú ert stjórnmálamaður.
Og hvernig á að velja flokk? Sem betur fer er „flokkatrúin“ að dala og fólk er ekki með blinda trú á einum flokki, enda eru flokkarnir ekki alltaf trúir þeim. Mikilvægt er þó að kjósa og á vef Sambands íslenskra sveitarfélga segir: „Þótt það líti stundum út fyrir að atkvæði eins einstaklings skipti litlu máli, þá skiptir fjöldinn máli – og þegar við mætum á kjörstað eykst vægi málefna sem við viljum sjá breytast. Með góðri þátttöku tryggjum við að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri.“
Þetta er vel mælt og af því að Hafnfirðingar eru keppnisfólk, þá væri gaman ef við næðum mestu kosningaþátttökunni.
Hverju lofa flokkarnir? Skoðið stefnuskrárnar, ekki bara slagorðin. Hvernig ætla þeir að fjármagna loforðin? Hvar ætla þeir að skera niður ef þeir vilja lækka skuldir? Eru allir jafnir þegar kemur að kosningaloforðum? Litlu málin skipta líka miklu máli.
En hversu vel þekkja frambjóðendur bæinn sinn? Hafnarfjörður er stór og upplandið stórt og sumt langt í burtu. Því má ekki gleyma og er í lagi að fórna því fyrir orkuvinnslu? Hvar er samráðið við bæjarbúa? Vita frambjóðendur um allar minjar, friðaðar sem aðrar sem finna má í bæjarlandinu? Leita þeir sér upplýsinga?
Hverju lofa flokkarnir í skipulagsmálum? Í sveitarfélaginu sem sumir segja að auðveldast sé að fá gerðar skipulagsbreytingar. Lofa þeir þeir hverfum þar sem íbúarnir eru hafðir í fyrirrúmi, ekki hámarksnýting lands?
Ég skora á frambjóðendur að kynna sér allan bæinn, góð leið er að ganga eða hjóla um hann allan og til að kynnast upplandinu er Ratleikur Hafnarfjarðar frábær leið og fjölskylduvæn.
Kynnum okkur málin og kjósum eftir því.





