HeimÁ döfinniBlúsveisla í Hafnarfirði til styrktar Píeta samtökunum

Blúsveisla í Hafnarfirði til styrktar Píeta samtökunum

Margir af fremstu blúsurum landsins stíga á svið í Ægi 220 á laugardaginn og leggja Píeta samtökunum lið á stórtónleikum sem hefjast kl. 15 og standa fram undir miðnætti.

Þrettán hljómsveitir leika, bílasýning frá Krúser og matvagnar verða á svæðinu.

Allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til Píeta samtakanna og allt tónlistarfólk gefur vinnu sína til styrktar Píeta.

Fyrir þá sem komast ekki á tónleikana er einnig hægt að styrkja Píeta samtökin beint hér.

Gestir geta farið af svæðinu og komið aftur að vild meðan á viðburðinum stendur.

Miðaverð: 3.900 kr. og er miðasala á midix.is

Dagskrá

  • 15.00–15.30, Fógetarnir
  • 15.40–16.10, GG Blús
  • 16.20–16.50, Blússveit Jonna Ólafs
  • 17.00–17.30, MMG
  • 17.40–18.10, Hráefni
  • 18.20–18.50, Ungfrúin
  • 19.00–19.30, Lame Dudes
  • 19.40–20.10, CC Fleet
  • 20.20–20.50, Björn Thoroddsen
  • 21.00–21.30, Krummi Björgvinsson
  • 21.40–22.10, Beggi Smári, Beggi Morthens, Þorleifur Guðjóns, Einar Scheving og Gunnar Örn
  • 22.20–22.50, Guðmundur Pétursson
  • 23.00–23.30, Ebenezer

Píeta samtökin hvetja alla blúsunnendur, bílaáhugafólk og velunnara Píeta samtakanna til að mæta og eiga ógleymanlegan dag saman við höfnina.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2