Á morgun, þriðjudaginn 5. maí kl. 12 verða síðustu hádegistónleikar þessa vormisseris í Hafnarborg en þá verður söngkonan Elín Ósk Óskarsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.
Þá munu þær flytja aríur úr óperum eftir ítölsku tónskáldin Puccini, Mascagni og Verdi en yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er „Ást og örvænting“.
Elín Ósk Óskarsdóttir hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga á píanó 11 ára gömul og söng í Tónleitarskólakór Rangæinga. Árin 1979-1984 stundaði hún svo nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan LRSM (einsöngvaraprófi). Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og undirleikari var Jórunn Viðar, tónskáld. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro, tenór og prófessor hjá Verdi-akademíunni í Mílanó. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1986 aðeins 25 ára og var það jafnframt hennar fyrsta hlutverk á sviði. Síðan hefur Elín sungið innanlands og erlendis ótal óperuhlutverk ásamt öðrum sönguppákomum.
Hún hefur einnig hlotið tilnefningar fyrir söng sinn og árið 2006 var hún útnefnd Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar og 2009 hlaut hún riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar og menningarlífs.
Elín Ósk undirbýr nú 40 ára ferilstónleika sína sem verða í Salnum 4. október. Með henni til fulltingis verða: píanistarnir Antonía Hevesi, Peter Máté og Jónas Þórir ásamt Óperukór Reykjavíkur undir stjórn Arons Axel Cortes. Kynnir og sögumaður á tónleikunum verður Bergþór Pálsson söngvari.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund.
Aðgangur er ókeypis.




