Markaðsstofa Hafnarfjarðar útnefnir árlega fyrirtæki ársins og voru þau afhent við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í kvöld.
Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru fyrst afhent árið 2017, en þau bera nú heitið Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði. Verðlaunin eru veitt árlega til að heiðra fyrirtæki sem hafa skarað fram úr í að efla atvinnulíf og bæjarbrag í Hafnarfirði.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á því frábæra starfi sem unnið er innan bæjarins og hvetja til áframhaldandi þróunar og nýsköpunar í atvinnulífinu. Þau eru jafnframt hugsuð sem hvatning og þakklætisvottur fyrir það mikilvæga starf sem unnið er á hverjum degi við að gera Hafnarfjörð að enn betra samfélagi.
Kallað var eftir tilnefningum og bárust fjölmargar tilnefningar að sögn Þóru Hrundar Guðbrandsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofunnar. Dómnefnd valdi þrjú fyrirtæki sem hún taldi hæfust, Fjörukrána, Kjötkompaníið og Rio Tinto á Íslandi.
Góð mæting var við athöfnina og boðið var upp á veitingar fyrir afhendingu sem espaði upp í forvitni fólks um það hver hlyti hnossið.
Nýliði ársins og þakkarverðlaun

En fyrst var upplýst um Nýliði ársins í Hafnarfirði og fyrirtækið sem það hneppti var Barabara kaffibar ehf. sem rekur samnefnt kaffihús í miðbænum.
Sú viðurkenning er veitt fyrirtæki sem hefur á skömmum tíma vakið verðskuldaða athygli, sýnt frumkvæði, metnað og gefið skýrt til kynna að það sé komið til að setja sitt mark á bæinn.
Barbara kaffibar hefur á stuttum tíma skapað sér fallegan sess í bæjarlífinu með hlýlegri stemningu, metnaðarfullri þjónustu og sterkri nærveru í nærumhverfinu. Slík fyrirtæki skipta miklu máli fyrir bæjarbraginn — þau skapa líf, tengingu og upplifun og gera Hafnarfjörð enn notalegri og meira aðlaðandi stað til að búa í og heimsækja.

Þá voru sérstök Þakkarverðlaun veitt og hlutu Nonni gull og Blómabúðin Burkni þau verðlaun.
Þau eru til fyrirtækja sem hafa starfað í bænum okkar í árabil og eru órjúfanlegur hluti af bæjarbrag Hafnarfjarðar. Slík fyrirtæki skipta samfélagið okkar miklu máli. Þau skapa ekki
aðeins störf og þjónustu, heldur líka samfellu, traust og þá tilfinningu að hér sé gott að búa og starfa.
Blómabúðin Burkni, sem hefur með hlýju, litum og persónulegri þjónustu komið við sögu í lífi ótal bæjarbúa en fyrirtækið hóf starfsemi sína 1962 og hefur þriðja kynslóðin tekið við.
Nonni Gull hefur með traustum rekstri og fagmennsku verið fastur punktur í bæjarlífinu í gegnum árin.
Fyrirtæki ársins
Það var nokkur spenna þegar kom að því að kynna hvaða fyrirtæki hefði hlotið hnossið að vera útnefnd fyrirtæki ársins. Fyrst voru sýnd myndbönd með kynningum á fyrirtækjunum.
Fjörukráin
Fjörukráin er einstakur og rótgróinn staður í Hafnarfirði sem hefur um árabil skapað sér sérstöðu, bæði meðal bæjarbúa og gesta. Með sterkri upplifun, skýrum karakter og hlýlegum móttökum hefur Fjörukráin verið mikilvægur hluti af bæjarbragnum og stuðlað að því að gera Hafnarfjörð að lifandi og eftirminnilegum áfangastað.
Kjötkompaní
Kjötkompaní hefur byggt upp öflugt fyrirtæki með skýra sýn á gæði, fagmennsku og góða þjónustu. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir metnað í rekstri, sterka ímynd og framúrskarandi vöruúrval. Með því hefur það ekki aðeins skapað sér traustan sess heldur einnig eflt verslun og þjónustu í Hafnarfirði.
Rio Tinto á Íslandi
Álverið í Straumsvík er eitt af stærri og mikilvægustu fyrirtækjum sveitarfélagsins og hefur í áratugi gegnt lykilhlutverki í atvinnulífi Hafnarfjarðar. Fyrirtækið hefur haft víðtæk áhrif á samfélagið, skapað fjölda starfa og lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og þróunar. Þar fer saman sterk atvinnusköpun, þekking og mikilvæg tenging við sögu og þróun atvinnulífs í bænum.
„Öll þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að hafa á sinn hátt lagt sitt af mörkum til að styrkja samfélagið okkar og atvinnulífið í Hafnarfirði. Fyrir það eigum við þeim mikið að þakka og þau eiga öll heiðurinn skilinn fyrir tilnefninguna,“ sagði Þóra Hrund.
Þá var upplýst að Fjörukráin hafi hlotið hnossið.

Jóhannes Viðar Bjarnason, Jói í Fjörukránni, tók við verðlaununum ásamt dætrum sínum Birnu og Unni. Upplýsti bæjarstjóri að Jói hafi gengið að honum þegar hann kom í hús og sagt; „Ég er kominn til að sækja bikarinn minn“, sem lýsir húmornum hjá Jóa vel. Þakkaði hann fyrir verðlaunin og sagði að það hafi ekki alltaf fallið í góðan jarðveg það sem hann hafi gert en síðar hafi allir orðið ánægðir.


























