HeimFréttirPólitíkSkólalóðin er hluti af velferð barna

Skólalóðin er hluti af velferð barna

Skólalóðin er miklu meira en bara svæði í kringum skólabyggingu. Hún er hluti af daglegu umhverfi barna og gegnir mikilvægu hlutverki í lífi þeirra á hverjum einasta skóladegi. Þar leika börn sér, hreyfa sig, æfa samskipti, leysa ágreining, mynda vináttubönd og sækja sér nauðsynlega tilbreytingu frá kennslustofunni. Fyrir mörg börn er skólalóðin einn mikilvægasti vettvangur dagsins ekki síður en skólastofan sjálf.

Þess vegna skiptir það svo miklu máli hvernig þessum svæðum er háttað og þau skipulögð. Skólalóð þarf að vera örugg, aðgengileg og vel úr garði gerð. Hún þarf að bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu sem mætir ólíkum þörfum barna. Sum vilja hlaupa og klifra, önnur leika sér í rólegri leik, spjalla við vini eða finna skjól og svæði þar sem þau geta verið án þess að þurfa stöðugt að vera í áreiti. Góð skólalóð tekur mið af þessari fjölbreytni og skapar rými fyrir ólíka styrkleika, ólíkan áhuga og ólíka líðan.

Vel hönnuð skólalóð stuðlar að aukinni hreyfingu og betri heilsu en hún gerir meira en það. Hún styður við félagsþroska, eykur líkur á jákvæðum samskiptum og getur jafnvel dregið úr árekstrum og vanlíðan. Börn sem hafa aðgang að öruggu og fjölbreyttu útisvæði fá fleiri tækifæri til að njóta sín, losa um orku og koma endurnærð inn í næstu kennslustund. Við vitum öll að vellíðan barna hefur bein áhrif á nám, hegðun og lífsgæði.

Sem kennari í Öldutúnsskóla upplifi ég þetta daglega. Ég sé hversu mikilvægt það er að nemendur hafi aðgang að umhverfi sem styður við öryggi þeirra, leikgleði og hreyfingu, bæði inni í skólanum og úti á lóðinni. Því miður hefur lóð skólans um nokkurt skeið verið langt frá því að uppfylla þær kröfur sem við eigum að gera til umhverfis barna. Það er verulegt áhyggjuefni.

Umhverfið skiptir máli fyrir öryggi og líðan

Ástand skólalóðarinnar í Öldutúnsskóla er mjög slæmt og hún er einfaldlega ekki nógu örugg fyrir nemendur. Slíkt hefur bein áhrif á daglegt líf barnanna. Það snertir leik þeirra, hreyfingu, samskipti og síðast en ekki síst öryggi. Þegar skólalóð er illa farin, einhæf eða hættuleg verður hún ekki sá jákvæði vettvangur sem hún á að vera. Þá tapast tækifæri sem ættu að nýtast til leiks, þroska og samveru.

Skólalóð er órjúfanlegur hluti af skólastarfi. Þar fer fram nám í víðum skilningi, þó það sé ekki alltaf bóklegt. Börn læra að taka tillit, bíða, semja, prófa sig áfram og takast á við bæði sigra og vonbrigði. Allt þetta eru mikilvægir þættir í þroska þeirra. Það er því ekki hægt að líta á skólalóðir sem eitthvert jaðarmál eða snyrtiverkefni sem megi bíða betri tíma. Þær eru hluti af grunninnviðum skólasamfélagsins.

Þess vegna eru það mjög jákvæð tíðindi að nú standi til að ráðast í endurbætur á leik- og grunnskólalóðum í Hafnarfirði og að skólalóðin í Öldutúnsskóla sé þar í forgangi. Það eru löngu tímabærar framkvæmdir og mikilvægt skref í rétta átt. Með þeim er verið að viðurkenna það sem starfsfólk, foreldrar og nemendur hafa lengi fundið fyrir og bent á, að aðstaðan skiptir máli og að börn eiga rétt á öruggu og hvetjandi umhverfi.

Það er því mikilvægt að horfa á þessar framkvæmdir sem fjárfestingu í börnunum okkar. Með því að bæta skólalóðina erum við ekki aðeins að laga yfirborð, endurnýja leiktæki eða snyrta umhverfið. Við erum að bæta daglegt líf nemenda, auka öryggi þeirra og styðja við heilsu, þroska og velferð. Það er verkefni sem skiptir máli fyrir allt bæjarfélagið.

Hafnarfjörður á að setja börnin í fyrsta sæti, ekki bara í orði heldur líka á borði. Öruggar, fjölbreyttar og vel hannaðar skólalóðir eru hluti af því. Þar er ekki aðeins verið að byggja upp betra umhverfi heldur líka sterkari grunn fyrir framtíðina.

Ásdís Jóhannesdóttir,
grunnskólakennari og skipar sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2