Tveir bílar skullu saman á Lækjargötu rétt fyrir hádegi í dag.
Fólksbíl, sem var ekið út frá húsunum að Lækjargötu 26-34 var ekið út á Lækjargötu í veg fyrir sendibíl sem ekið var austur götuna.
Höggið var mikið og snérist fólksbíllinn um hálfan hring.
Tveir voru í fólksbílnum og einn í sendibílnum og var ekki talið að þeir hafi meiðst en þeim var mikið brugðið.





