HeimFréttirListi Sjálfstæðisflokksins hefur verið birtur

Listi Sjálfstæðisflokksins hefur verið birtur

bæjarfulltrúi Framsóknar hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur einróma, á fundi í gærkvöldi.

Í tilkynningu segir að listinn sé skipaður öflugum hópi á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn og víðtæka reynslu úr bæjarmálum og atvinnulífi.

„Við finnum fyrir vaxandi stuðningi og jákvæðni í garð flokksins sem gefur góðan byr í seglin. Sjálfstæðismenn eru mættir til leiks kraftmiklir og í miklum baráttuhug,“ segir Orri Björnsson.

Úr Framsókn í Sjálfstæðisflokkinn

Margrét Vala Marteinsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem hafði ákveðið að hætti í stjórmálum, hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og skipar hún 10. sæti listans. Hún hafði setið í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn frá 2022. Við þetta fjölgar bæjarfulltrúum flokksins í Hafnarfirði úr fjórum í fimm en þurfi hún að kalla inn varamann, kemur sá úr röðum Framsóknarmanna.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði 2026

  1. Orri Björnsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
  2. Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi og formaður fræðsluráðs
  3. Viktor Pétur Finnsson, varaþingmaður
  4. Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, bæjarfulltr. og form. umhverfis- og framkvæmdaráðs
  5. Kristinn Andersen, verkfræðingur, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
  6. Helga Björg Loftsdóttir, verkefnastjóri
  7. Einar Páll Þ. Mathiesen, hagfræðingur
  8. Kristjana Ósk Jónsdóttir, sérfræðingur í bókhaldi og skattaráðgjöf
  9. Júlíus Freyr Bjarnason, framkvæmdarstjóri/eigandi
  10. Margrét Vala Marteinsdóttir, bæjarfulltrúi og forstöðukona hjá búsetukjarna
  11. Hilmar Ingimundarson, viðskiptafræðingur
  12. Unnur Elín Sigursteinsdóttir, sölufulltrúi
  13. Örn Geirsson, umsjónamaður fasteigna
  14. Eva Björk Harðardóttir, framkvæmdarstjóri
  15. Birkir Snær Brynleifsson, laganemi
  16. Guðjón Óskar Guðmundsson, framhaldsskólakennari
  17. Paula Wiszniewska, hársnyrtir
  18. Þórhallur Guðmundsson, viðskiptafræðingur
  19. Bjarni Geir Lúðvíksson, frumkvöðull
  20. Elsa Dóra Grétarsdóttir, eftirlaunaþegi og sérfr. í lífeyrisréttindum
  21. Kovan Abdulkahleq Ali, klæðskeri
  22. Rósa Guðbjartsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2