Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á öðrum tímanum í dag er eldur kviknaði í iðnaðarbili að Brekkutröð 3.
Enginn var í húsnæðinu sem nýtt var sem geymsluhúsnæði. Nágrannar reyndu að fara inn með slökkvitæki en urðu frá að hverfa og var slökkvilið kallað út.
Mikinn reyk lagði frá brunanum og mátti sjá langt að og iðnaðaðarbil við hliðina fylltist af reyk.
Slökkvilið náði fljótlega tökum á eldinum sem ekki náði að læsa sig í nærliggjandi hús en skemmdir hafa þó orðið einhverjar vegna reyks og hita en rúður sprungu í bili fyrir ofan.




