HeimFréttirListi Samfylkingarinnar hefur verið birtur

Listi Samfylkingarinnar hefur verið birtur

Ekki stórar breytingar á efstu sætum

Listi Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur á opnum félagsfundi í morgun.

Eins og við var búist leiðir Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar listann.

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti listans.

Á listanum eru þessi:

  1. Guðmundur Árni Stefánsson
  2. Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi
  3. Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Samfylkingarinnar
  4. Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur
  5. Stefán Már Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi og prestur
  6. Hekla Sóley Arnardóttir, þroskaþjálfi
  7. Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, félagsmálafulltrúi hjá Hlíf
  8. Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri Skarðshlíðarskóla
  9. Jón Grétar Þórsson, starfsmaður í félagsþjónustu
  10. Auður Brynjólfsdóttir stjórnmálafræðingur
  11. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits.
  12. Hrund Biering Valsdóttir, eftirlit og verkefnastýring á Verkfræðistofur Reykavíkur
  13. Árni Freyr Ársælsson, deildarstjóri hjá Rafal.
  14. Jóhanna Ósk Maríudóttir Nielsen, sálfræðingur
  15. Sigurður Þórður Ragnarsson, jarðvísindamaður
  16. Gundega Jaunlinina, varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
  17. Valdimar Aðalsteinsson, háskólanem
  18. Sonja Magnúsdóttir, eigandi Fitnesssport
  19. Ragnar Már Jónsson, saxófónleikari og tónlistarkennari
  20. Sigrid Foss, eftirlaunaþegi
  21. Tryggvi Rafnsson, leikari og verkefnastjóri
  22. Valgerður M. Guðmundsdóttir, fv. bæjarfulltrúi

Þau Elín Anna, Hekla Sóley, Margrét Lilja og Óskar Steinn eru ný á lista.

Hildur Rós var í síðustu kosningum í 4. sæti en tekur 2. sæti Sigrúnar Sverrisdóttur, sem flutti úr bænum og Elín Anna tekur hennar sæti.

Meðalaldur fólks á listanum er 44 ár og er jafnt kynjahlutfall. 13 af 22 voru ekki á listanum fyrir síðustu kosningar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2