Miðvikudagur, febrúar 18, 2026
HeimFréttirBarnaheill og Borgarleikhús í samstarf með börnum á flótta

Barnaheill og Borgarleikhús í samstarf með börnum á flótta

Samstarfssamningur um leiklistarkennslu fyrir börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd, og sækja skóla í Hafnarfirði

Barnaheill og Leiklistarskóli Borgarleikhússins undirrituðu í gær samstarfssamning um leiklistarkennslu fyrir börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd, og sækja skóla í Hafnarfirði.

Haldnar verða leiklistarsmiðjur og námskeið í Víðistaðaskóla og Hvaleyrarskóla í mars, með það að markmiði að efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna.

Verkefnið Léttir

Samstarfið byggir á verkefninu Létti, sem Leiklistarskóli Borgarleikhússins hóf árið 2020 fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hjá Reykjavíkurborg. Verkefnið var svo útvíkkað fyrir tveimur árum, þegar Leiklistarskólinn hóf samvinnu við móttökudeild Seljaskóla, og enn frekar árið 2025 þegar móttökudeild Breiðagerðisskóla bættist við.

Með samstarfssamningi Barnaheilla og Borgarleikhússins gefst börnum í Hafnarfirði nú kostur á að taka þátt í verkefninu en verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ hefur milligöngu um samstarfið við móttökudeildirnar. Leiklistarkennslan býður upp á öruggt og skapandi rými þar sem börnin geta tjáð sig, kynnst öðrum í sömu stöðu, og þróað félagsfærni sína. Leiklistin hvetur til samvinnu og samskipta sem eru mikilvægir þættir í því að aðlagast nýju samfélagi. Börnin læra að vinna í hópi, hlusta á aðra og koma skoðunum sínum á framfæri.

Notast er við áfallamiðaða nálgun til að koma til móts við bakgrunn barnanna, sem mörg hver hafa upplifað stríð, aðskilnað frá fjölskyldu, og slæmar aðstæður sem mæta fólki á flótta. Sum hafa verið á flótta allt sitt líf, og skólaganga þeirra er í mörgum tilfellum mjög brotin eða jafnvel engin. Leitast er við að skapa vettvang þar sem börnin geta unnið úr þessum tilfinningum, og fengið tækifæri til að tjá sig á öruggan og skapandi hátt í gegnum leiklist.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Tótla Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla og Egill Heiðar Anton Pálsson leikússtjóri Borgarleikhússins undirrita samstarfssamninginn

Nánar um leiklistarverkefnið Létti

Í verkefninu Létti vinnur starfsfólk móttökudeilda þeirra skóla sem börnin sækja, náið með leiklistarkennurum Leiklistarskóla Borgarleikhússins. Þannig er hægt að veita nemendunum nauðsynlegan stuðning í utanumhaldi og valdeflingu þeirra á námskeiðinu, en einnig í kennslu og skólastarfi utan þess.

Námskeiðið fer í fyrstu fram í skólunum þar sem farið er í hópeflis- og spunaleiki, ásamt því að kynna leikhúsið fyrir börnunum  en sum hafa hvorki séð leikrit né komið í leikhús. Hópnum er svo boðið á sýningu í Borgarleikhúsinu, og börnin fá að kynnast öllu því starfi sem fer fram baksviðs og til undirbúnings leiksýninga. Seinni hluti námskeiðsins fer fram í leikhúsinu þar sem þau fá að æfa og að lokum setja upp litla sýningu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2