Nemendur 10. bekkjar Víðistaðaskóla frumsýna á föstudag söngleikinn Mamma Mía.
Nærri fimmtíu manna leikhópur tekur þátt í sýningunni og aðrir fjörutíu sinna stuðningshlutverkum.
Öllu er tjaldað til. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa öll lagt sitt á mörgum við að sauma búninga og smíða leikmynd og hafa æfingar staðið yfir síðan í haust.
Sýningar verða 13.-15. febrúar og eru fimm talsins. Fer hvar að verða síðastur að tryggja sér miða. Verð almennt 3.200 krónur en 1.700 fyrir 7. bekk og yngri.
Nemendurnir fjármagna útskriftarferð sína í Þórsmörk í vor með sýningunni. Söngleikurinn er líka hluti af list- og verkgreinanámi þeirra.
Söngleikurinn
Söngleikurinn Mamma Mía er byggður á tónlist Abba og fjallar um unga konu sem er að gifta sig á grískri eyju og vill komast að því hver faðir hennar er. Hún býður þremur mögulegum feðrum í brúðkaupið án þess að móðir hennar viti af því. Sagan er létt, fyndin og full af þekktum og grípandi lögum.
- Höfundar: Catherine Johnson og ABBA
- Íslensk þýðing: Þórarinn Eldjárn
- Leikstjórn: Úlfhildur Harne Örnólfsdóttir
- Tónlistarstjórn: Jóhanna Ómarsdóttir
- Danshöfundur: Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir
- Búningahönnun: Kristín Högna Garðarsdóttir
- Sviðsmynd, búningar, förðun, ljós og hljóð er allt í höndum krakkanna og foreldra þeirra.
Verkefnið er árlegt samstarfsverkefni skólans, félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins og foreldra og koma allir nemendur í 10. bekk á einhvern hátt að verkefninu.




